Markaðurinn
Bransadagar – „…endum svo vikuna á brjáluðu bransapartíi“
Bransadagar Iðunnar fara fram í fyrsta sinn í ár með fjölbreyttri fræðslu helgaðri sjálfbærni í iðnaði. Á bransadögum koma saman ólíkar iðngreinar og setja sjálfbærni í brennidepil; prent- og miðlunargreinar, matvæla- og veitingagreinar, byggingar- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar og bílgreinar.
Dagana 9. og 10. nóvember verður boðið upp á stafræna fyrirlestra á vefnum frá innlendum og erlendum sérfræðingum í sjálfbærni og umhverfismálum í iðnaði. Við endum svo vikuna á brjáluðu bransapartíi í húsnæði Iðunnar að Vatnagörðum 20, föstudaginn 11. nóvember nk.
Bransapartí
Húsið opnar kl. 15:00 með skemmtilegri dagskrá.
- Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku og loftslagsmála fjallar um grænan iðnað
- Sonja Rut Aðalsteinsdóttir, service development manager og Sigurður Örn Alfonsson, sustainability specialist kynna sjálfbærnivegferð Marels
- Kynning á verkefninu orkuskipti.is
- Uppistand
- Frikki Dór stígur á svið
- Júlladiskó sér um að þeyta skífum
- Veitingar frá Lady Brewery og Kokkunum
Aðgangur í partíið er að sjálfsögðu ókeypis en það þarf að skrá sig.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt3 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn5 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt4 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni2 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi






