Smári Valtýr Sæbjörnsson
Blý í túrmerik kryddi og vítamíndropar með of miklu magni af D-vítamíni
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um eftirfarandi innkallanir í júlí í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF sem vert er að vekja athygli neytenda á. Ekki er vitað til að tilteknar vörur séu á markaði hér, að því er fram kemur á heimasíðu mast.is.
Um er að ræða danska D vítamíndropa sem mældust með 75 falt hærra magn en gefið er upp á pakkningu en samkvæmt dönsku fréttinni innihalda droparnir 150 µg en eiga að innihalda 2 µg. Tilkynnt hefur verið um fjöldi tilfella í Danmörku þar sem ungabörn hafa greinst með eitrunareinkenni eftir neyslu á dropunum. Droparnir hafa eingöngis verið til sölu í Danmörku.
Bandaríska matvæla-og lyfjaeftirlitið hefur mælt í reglubundnu eftirliti of hátt magn af blýi í tilteknum framleiðslulotum af nokkrum vörutegundum af túrmerik kryddi. Neysla á blýi er sérstaklega varasöm fyrir barnshafandi konur og börn. Innflytjendur á túrmerik kryddi frá Bandaríkjunum hafa staðfest til Matvælastofnunar að þessar vörutegundir eru ekki til sölu hérlendis.
Blýið getur stafað af því plantan er ræktuð í býmenguðum jarðvegi og þá fylgir einnig jarðvegur rótunum í þurrkun og mölun, en blýarsenat var notað sem skordýraeitur á fyrstu áratugum síðustu aldar og situr enn í jarðvegi í mismiklu magni eftir svæðum. Einnig getur blýið borist í kryddið við þurrkun og vinnslu vegna mengunar. Þá eru þekkt tilfelli þar sem blýi hefur viljandi verið bætt í túrmerik til að auka þyngd en kryddið er selt eftir vigt.
Krækja á dönsku innköllunarsíðuna (FVST) varðandi D-vítamíndropana og mynd af vörunni má sjá hér
Krækja á bandarísku matvæla-og lyfjaeftirlitsstofnunina (FDA)um innköllunina á túrmerikkryddi og mynd af vörunum má sjá hér
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni4 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn3 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Markaðurinn7 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn4 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?





