Vertu memm

Vín, drykkir og keppni

Ætti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?

Birting:

þann

Ætti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?

Topp veitingastaðir í London munu í febrúar bjóða gestum upp á saké með nútíma evrópskum réttum í sérstökum viðburði sem hefur það að markmiði að brjóta niður hugmyndir um að drykkurinn passi aðeins við japanska matargerð.

Athyglinni verður beint að því að saké búi yfir mun meiri breidd og dýpt en margir gera sér grein fyrir, meðal annars með því að bjóða upp á saké með vesturlenskum réttum og jafnvel ostum og kjötréttum. Tilgangurinn er að breyta hugmyndum neytenda um saké sem eingöngu „sushi-drykk“ og færa hann inn á bari og matsölustaði borgarinnar sem sjálfstætt val á vínseðlum.

Að sögn framkvæmdaraðila Sake Sensations telja þeir að aukin vitund um hversu vel saké getur farið með ólíkum réttum geti stuðlað að því að drykkurinn verði algengari á evrópskum veitingastöðum á næstu árum. Að þeirra mati endurspeglar það áframhaldandi þróun í matarmenningu, þar sem drykkir á borð við saké fá aukið rými utan hefðbundinna japanskra ramma.

Ekki er óeðlilegt að velta því fyrir sér hvort slíkur viðburður gæti einnig fallið í frjóan jarðveg hér á landi.

Mynd: Instagram / Sake Sensations

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið