Freisting
Æfir 6 daga í viku fyrir Bocuse d´Or

Þráinn Freyr Vigfússon
Þráinn Freyr Vigfússon hefur verið valin næsti keppandi fyrir Íslands hönd í Bocuse D´Or keppninni.
Þráinn er 29 ára gamall frá Sauðárkróki í Skagafirði, lærði á Café Operu og Hótel sögu og útskrifaðist úr Hótel og matvælaskólanum árið 2005.
Síðan hann útskrifaðist hefur hann unnið sem aðstoðaryfirkokkur á Grillinu á Hótel Sögu (Radison Blue). Þráinn var valin matreiðslumaður ársins 2007 og var í 1 sæti í One World Culinary Competition árið 2008 og náði 2 sæti í keppninni um matreiðslumann Norðurlanda árið 2009.
Þráinn hefur eins og aðrir matreiðslumenn fylgst með Bocuse D´Or keppninni í mörg ár og verið spenntur fyrir því að taka þátt í svona sóttir keppni með fremstu matreiðslumönum heims. Með Þránni fara 3 aðstoðarmenn, Bjarni Siguróli Jakobsson matreiðslumaður á Hilton, Atli Þór Erlendsson og Tómas Ingi matreiðslunemar á Hótel Sögu (Radison Blue)

F.v. Tómar Ingi, Atli Þór, Þráinn og Bjarnir Siguróli
Þráinn og aðstoðarmenn hans æfa 2-3 daga í viku og hafa gert síðan í janúar svo í apríl tekur Þráinn sér frí frá vinnu til að æfa sig 6 daga í viku í Bocuse D´Or eldhúsinu í Fastus. Þar verður eldhúsinu breytt í keppnisbúr eins og í keppninni sjálfri og strax þá hefjast tímaæfingar en þær fara þanning fram að á 1. degi er undirbúningur fyrir tímaæfinguna, á öðrum degi er svo tímaæfingin sjálf og á 3 degi er svo allt lagað og bætt.
Aðalhráefnið í keppnini að þessu sinni er kálfur frá Sviss, hryggur, bris og haus og lúða frá Noregi.
Við hjá Bocuse D´Or akademíunni á Íslandi erum stolt af framlagi okkar til keppninnar þetta árið. Við óskum Þránni og aðstoðarmönnum hans góðs gengis.

ÁFRAM ÍSLAND !!
Ólöf Jakobsdóttir
Ritari Bocuse D´Or akademíunnar
www.bocusedor.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn5 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn4 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Keppni5 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn4 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni4 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
-
Frétt13 klukkustundir síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu



