Frétt
Á von á kæru eftir að hafa skrifað slæma gagnrýni um veitingastað á Tripadvisor
Sarah Gardner frá bretlandi er ein taugahrúga að hennar sögn eftir að veitingastaður hefur hótað því að kæra hana eftir að hún skrifaði slæma umsögn um veitingastaðinn á heimasíðunni Tripadvisor. Sarah skrifaði að starfsfólkið hafi verið dónlegt að maturinn hafi verið í besta falli í meðallagi. Hún gaf síðan veitingastaðnum verstu mögulegu einkunn á síðunni, eina stjörnu.
Veitingastaðurinn heitir High Rocks og er staðsettur í Kent-sýslu í Englandi. Sarah óraði ekki fyrir viðbrögðum veitingastaðarins, en í viðtali við breska blaðið Mirror sem að dv.is vekur athygli á, sagði hún að veitingastaðurinn hefði farið í „kjarnorkuham“ gegn sér. Nokkrum dögum eftir að hún skrifaði gagnrýnina fékk hún sent bréf frá lögfræðistofunni Cohen Davis Solicitors. Í bréfinu kom fram að ummælin sem hún hefði látið falla væru meiðandi og þar af leiðandi ólögleg. Bréfið var heilar ellefu blaðsíður að lengd og þar var farið um víðan völl.
Meðal annars kom þar fram sú skoðun veitingastaðarins að umsögn Söruh hefði kostað staðinn umtalsverðar tekjur.
„Skjólstæðingur okkar mun fara fram á skaðabætur frá þér vegna fjárhagslegs tjóns sem hann hefur orðið fyrir“
, segir í bréfinu.
Á dv.is kemur fram að lögfræðingarnir fari fram á ítarlegar upplýsingar um tímasetningu heimsóknar Söruh, hverjir snæddu með henni sem og kvittanir fyrir greiðslum.
Í lok bréfsins var síðan hótun um að hún yrði kærð fyrir ummæli sín ef að þau yrðu ekki dregin tilbaka.
Í áðurnefndri frétt Mirror kemur fram að Sarah hafi orðið fyrir áfalli þegar bréfið barst en að hún ætli að standa við orð sín. Mirror hafði þá samband við lögfræðistofuna sem að tjáði blaðinu að þeir ættu ekki von á góðu ef að fjallað yrði um meiðandi ummæli Söruh. Hún yrði kærð innan tíðar, að því er fram kemur á dv.is.
Mynd: skjáskot af google korti.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanMichelin-hjónin hætta skyndilega á À L’aise tveimur mánuðum eftir nýja Michelin-stjörnu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanC.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins
-
Frétt3 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHvers vegna eru franskar ekki á matseðli Costco?
-
Markaðurinn3 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi



