Markaðurinn
Svansleyfi fyrir íslenska framleiðslu Tandur

Arnar Garðarsson frkvstj. Tandur, Brynleifur Björnsson Gæðastjóri Tandur, Guðrún Lilja Kristinsdóttir frkvstj. Svansins, Guðlaugur Þór Þórðarsson umhverfisráðherra, Bjarni Ármansson stjórnarformaður Tandur, Reynir Jónsson stjórnarmaður.
Íslensk framleiðsla Tandur á vörunum QED PLUS, ECO GLJÁI og ECO PLUS hefur hlotið endurvottun Svansins og bera þessar vörur nú Svansleyfi til loka árs 2027. Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdarstjóri Svansins, ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfisráðherra, afhentu Brynleifi Björnssyni gæðastjóra Tandur Svansleyfið.
Tandur hefur allt frá stofnun, árið 1973, lagt mikla áherslu á umhverfismál og verið leiðandi fyrirtæki í íslenskri framleiðslu hreinlætisefna en árið 2018 fékk Tandur fyrst fyrirtækja á Íslandi Svansleyfi fyrir eigin framleiðslu. Samhliða sífellt vaxandi umhverfisvitund og kröfum neytenda er það hugur Tandur að vera í farabroddi varðandi umhverfismál og leggja sitt af mörkum við að draga úr umhverfisáhrifum eins og hægt er.
Samstarf Tandur og Umhverfisstofnunar er því hvergi nærri lokið en hafin er vinna við Svansvottun á í það minnsta fjórum vörum til viðbótar og er stefnt á að ljúka þeirri vinnu árið 2025.
Íslensk framleiðsla Tandur er fyrirtækinu mikilvæg og leggur Tandur mikinn metnað í að bæta framleiðsluhlut fyrirtækisins eins og best verður. Rúmlega Þrjár milljónir lítra hreinsiefna og meira en 70 vörutegundir er framleiddar hjá Tandur og eru uppi áform um að gera enn betur þar.
Aðgangur að íslenskri gæðaframleiðslu er ein besta leið fyrirtækja til þess gera betur í umhverfismálum sínum, minnka kolefnisfótspor sitt og auka sjálfbærni og þar ætlar Tandur að vera afl til betri vegar.
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanNÆS lokar sumrinu með fullbókuðu kvöldi í London
-
Keppni4 dagar síðanManuel Schembri og Oddný Ingólfsdóttir keppa fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSöfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal
-
Markaðurinn4 dagar síðanSilkimjúk humarbisque fyrir sælkera
-
Frétt4 dagar síðanSkreið frá Íslandi í sviðsljósinu í Tórínó
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt3 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
-
Keppni5 dagar síðanAlexander Jósef stóð uppi sem sigurvegari með „Chris Pine“





