Markaðurinn
Ný ásýnd og nýr sýningarsalur
- Myndir frá flutningunum
Á síðustu vikum hefur verið unnið hörðum höndum að því að sameina Verslunartækni & Geira og BakoÍsberg og erum við á lokasprettinum að sjá þetta gerast. Sameinað félag ber nafnið BAKO VERSLUNARTÆKNI þar sem okkur þótti við hæfi að virða þessi sterku nöfn sem þjónað hafa íslenskum veitinga- og hótelgeira í áratugi.
Við erum að klára að koma okkur fyrir á Draghálsi 22 við hliðina á vöruhúsinu í rúmlega 900 fm sýningarsal. Þar er að finna allt það sem kokkar, bakarar, þjónar, hótelstjórar og hverjir aðrir sem starfa í veitingageiranum þurfa á að halda.
Að sjálfsögðu er líka lögð áhersla á að þjónusta áfram verslunarekendur með innréttingar, kæli- og frystibúnað og hvað annað sem þarf til að tryggja verslunum og stórmörkuðum bestu aðstöðu fyrir sína viðskiptavini.
Allir lykilstarfsmenn og allir lykilbirgjar eru með okkur áfram auk þess sem þessi stórbætta aðstaða mun gera okkur kleift að þétta vöruvalið og vonandi að verða við óskum og þörfum allra.
Kíktu á nýja vefinn okkar, hann er reyndar í fullri þróun ennþá : www.bvt.is
Nýtt vörumerki:
Nokkrar myndir frá flutningunum:
Kæru vinir, endilega kíkið til okkar í kaffi og skoðið stærsta sýningarsal á Íslandi fyrir Veitingageirann.
-
Markaðurinn3 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni3 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Markaðurinn3 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Markaðurinn2 dagar síðanMata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
-
Bocuse d´Or3 klukkustundir síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Vín, drykkir og keppni19 klukkustundir síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna






















