Frétt
Skólamáltíðir í grunnskólum verða gjaldfrjálsar frá og með næsta skólaári
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum orðnar að veruleika , en skólamáltíðir í grunnskólum verða gjaldfrjálsar frá og með næsta skólaári. Alþingi samþykkti um helgina frumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem heimilar Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að greiða framlög til sveitarfélaga sem bjóða upp á skólamáltíðir.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til að styðja við nýgerða langtímakjarasamninga á vinnumarkaði og leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks.
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra:
„Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru réttlætismál. Með sögulegri samstöðu um kjarasamninga sköpum við jafnara og betra samfélag fyrir börnin okkar og þar með fyrir okkur öll.“
Rúmir 3,7 milljarðar fyrir hvert skólaár
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verður nú heimilt greiða framlög til sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða en Jöfnunarsjóður greiðir þegar ýmis önnur framlög til sveitarfélaga. Árlegt framlag úr ríkissjóði bætist við tekjur Jöfnunarsjóðs á árunum 2024-2027 vegna verkefnisins. Gert er ráð fyrir að framlag fyrir heilt skólaár nemi 3.750 m.kr.
Miðað er við að framlög vegna skólamáltíða skiptist hlutfallslega til sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar skólaárið á undan. Aðeins þau sveitarfélög sem bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir munu fá framlög.
Starfshópur meti áhrif
Ráðherra mun skipa starfshóp til að leggja mat á nýtingu og áhrif framlags gjaldfrjálsra skólamáltíða. Meðal annars skal meta áhrif á markmið um að auka jöfnuð og draga úr fátækt meðal barna, hvort allir árgangar nýti sér gjaldfrjálsar skólamáltíðir og hver sé ávinningur einstakra sveitarfélaga og landshluta. Þá skal meta reynslu og ánægju nemenda og foreldra.
Starfshópurinn verður skipaður fulltrúa innviðaráðherra, sem jafnframt er formaður, fulltrúa mennta- og barnamálaráðherra og tveimur fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 30. júní 2026.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni3 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Frétt5 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Frétt1 dagur síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist
-
Markaðurinn8 klukkustundir síðanEldur er aftur fáanlegur fyrir ostunnendur





