Frétt
Lundastofninn í hættu – Biðlað til veitingahúsa
Samkvæmt nýjustu gögnum um stöðu lundastofnsins þá hefur lunda fækkað mikið á síðustu 30 árum. Þetta sýna gögn frá Náttúrustofu Suðurlands, sem sér um vöktun lundastofnsins við Íslandsstrendur. Af þeim ástæðum biðla Umhverfisstofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið til veiðimanna og veitingageirans að gæta hófs við lundaveiðar og sölu á lundakjöti.
Veiðar valda fækkun lunda
Við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir lundastofninn fékk Umhverfisstofnun nýverið tvo óháða sérfræðinga, Dr. Fred A. Johnson og Dr. Carl Walters, til að rýna gögn Náttúrustofu Suðurlands og hugsanleg áhrif veiða á lundastofninn.
Helstu niðurstöður eru þær að langtímafækkun lundastofnsins á Íslandi sé líklega vegna uppsafnaðra áhrifa veiða og óhagstæðra umhverfisaðstæðna, til að mynda hás sjávarhita. Hlýskeið í Atlantshafi síðustu þrjá áratugi hefur valdið því að minna framboð er af helstu fæðu lundans. Líkur eru leiddar að því áframhaldandi veiðar, sambærilegum þeim sem hafa áður verið, muni valda frekari fækkun í viðkvæmum stofninum.
Biðlað til veiðimanna og veitingahúsa
Stór hluti af lundaveiðiafla hvers árs er seldur til veitingahúsa og því er eru veiðimenn hvattir til að gæta hófs við veiðar. Biðlað er til veitingahúsa að skoða til hlítar hvort lundi eigi heima á þeirra matseðli í ljósi þess hve stofninn er viðkvæmur og veiðar úr honum geti því ekki talist sjálfbærar.
Stofnmat á Íslenska lundastofninum – Samantekt helstu niðurstaða
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni5 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Markaðurinn5 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni




