Viðtöl, örfréttir & frumraun
Mathöllin Kúmen vinnur tvenn evrópsk verðlaun
Kringlan hlaut á dögunum tvenn evrópsk verðlaun fyrir mathöllina Kúmen sem opnaði í Kringlunni í nóvember 2022.
Verðlaunin Transform Awards eru bæði virt og eftirsótt. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í London á dögunum. Kringlan ásamt mörkunar- og upplifunarstofunni M Worldwide hlaut silfurverðlaun í flokkunum Best Brand Development Project og Best Brand Experience og bar þar sigurorð af stórum alþjóðlegum vörumerkjum m.a. Vodafone og Pepsi.
Sjá einnig: Stjörnutorg í Kringlunni lokar og ný mathöll tekur við
Best Brand Development Project verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi mörkun og umbreytingu húsnæðis í takti við breytta stefnu, gildi eða staðfærslu á markaði. Best Brand Experience verðlaunin eru veitt fyrir frábæra upplifun gesta á staðnum.
Með því að smella hér getur þú fræðst um verðlaunin eftirsóttu.
Mikil viðurkenning fyrir Kringluna og Kúmen
„Við erum afar stolt að hafa unnið til þessara stóru alþjóðlegu verðlauna. Þetta er mikil viðurkenning fyrir Kringluna og Kúmen“.
Það er alveg ljóst að Reykjavík var að kalla á nýjan stað til að hittast, borða og njóta. Á sama tíma er hlutverk og starfsemi verslunarmiðstöðva um allan heim að breytast þ.e. þáttur upplifunar og skemmtunar skipar æ stærri sess.
Þar hittir Kúmen hitti beint í mark. Gestafjöldi hefur aukist um þriðjung eftir breytinguna og velta á veitingastöðunum hefur aukist um allt að 100%,“
segir Inga Rut Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kringlunnar
Ánægð með verðlaunin
„Við hjá Reitum erum mjög ánægð með þessi verðlaun. Þróun og umbreyting fasteigna er mikilvægur hlekkur í því hlutverki fasteignafélagsins að skapa umgjörð utan um samfélagið og um mannlífið í borginni.
Með þessum verðlaunum er staðfest enn frekar að teymi Reita er á heimsmælikvarða í umbreytingu húsnæðis og í því að skapa frábæra upplifun gesta,“
segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
Breytingarnar voru unnar í náinni samvinnu Kringlunnar, Reita fasteignafélags, THG arkitekta og M Worldwide.
Mynd: kringlan.is
-
Keppni5 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Keppni1 dagur síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Markaðurinn5 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“




