Markaðurinn
Vaktstjóri á Bjórgarðinn – Fosshótel Reykjavík
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Íslandshótel óskar að ráða til sín öflugan vaktstjóra á Bjórgarðinn á Fosshotel Reykjavík.
Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Unnið er á vöktum.
Við leitum að öflugum og drífandi liðsmönnum til starfa í lifandi og alþjóðlegu umhverfi.
Bjórgarðurinn er samkomustaður allra bjórunnenda og þeirra sem þykir gott að borða góðan mat. Við bjóðum uppá ótal bjórtegundir, innlendag sem erlendar, bruggaðar úr vel völdum hráefnum.
Helstu verkefni:
- Almenn vaktstjórn í sal
- Fagleg þjálfun starfsmanna
- Umsjón með mönnun vaktar, afleysingar í fríum og veikindum
- Samvinna með öðrum deildum með hámarks upplifun gesta að leiðarljósi
- Miðlun upplýsinga til annars starfsfólks og milli vakta
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund.
- Sveinspróf í framreiðslu er kostur.
- Haldbær reynsla af þjónustustörfum er skilyrði.
- Fagmannleg framkoma, snyrtimennska.
- Góð samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi.
- Lágmarksaldur 20 ára.
- Góð íslensku- og ensku kunnátta.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Fosshótel Reykjavík er stærsta hótel landsins, með 320 herbergi og mögnuðu útsýni til allra átta.
Á efstu hæð má finna sjö svítur og þrjá fyrsta flokks fundarsali á annarri hæð. Allir hótelgestir hafa aðgang að líkamsræktaraðstöðu. Á hótelinu er svo einnig fyrsta flokks veitingastaður, Haust, en staðurinn tekur rúmlega 200 manns í sæti. Bjórgarðinn er einnig að finna á jarðhæð hótelsins en þar er boðið upp á frábært úrval af innlendum sem erlendum bjór.
-
Keppni3 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn3 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt2 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu




