Markaðurinn
Tiramisú með karamellu
Gott er að leyfa hráefnum eins og eggjum, rjóma og mascarpone ostinum að standa á borðinu í svolitla stund áður en er farið að gera tiramisu, það hjálpar hráefnunum að blandast betur saman.
Karamellu tiramisu
Fyrir 4 til 6
100 ml sterkt kaffi
2 egg
80 g sykur
250 ml rjómi
100 g Doré karamellu súkkulaði frá Nóa Siríus
200 g mascarpone ostur
24 stk Lady fingers (1 pk.)
Karamellusósa, keypt eða uppskrift hér fyrir neðan
2-3 msk kakó
Hellið upp á sterkt kaffi og leyfið að kólna lítillega.
Setjið egg og sykur saman í hrærivélarskál og þeytið saman þangað til það er létt og ljóst, í u.þ.b. 3-4 mín. Þeytið þá rjómann í annarri skál og í þeirri þriðju bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Þegar súkkulaðið er bráðið, setjið hrærivélina af stað með eggjunum og sykri og blandið súkkulaðinu saman við. Passið að súkkulaðið hafi kólnað lítillega áður.
Blandið þá súkkulaði blöndunni varlega saman við rjómann. Notið síðan rjómaskálina og setjið mascarpone ostinn í og hrærið aðeins í honum, blandið þá smá af súkkulaði rjómablöndunni við ostinn og þegar hann hefur samlagast við blönduna, bætið öllu saman í eitt.
Samsetning
Finnið til skál eða fat og sáldrið smá kakódufti í botninn (gott er að nota tesíu í verkið eða fínt sigti). Bleytið þá upp í lady fingers kökum í kaffinu, eina í einu og leggið í fatið. Drisslið karamellu yfir kökurnar u.þ.b. 2 msk og sáldrið kakódufti yfir, setjið þá um helming af blöndunni yfir. Þá er það að endurtaka leikinn. Bleyta í kökunum og leggja yfir, karamella og kakóduft. Í lokin má setja hinn helminginn af blöndunni yfir eða setja í sprautupoka með stút og sprauta yfir til að fá skemmtilega áferð.
Setjið í kæli og leyfið að hvíla í 8-24 tíma. Áður en tiramisuið er borið fram sáldrið kakódufti yfir og bjóðið restina af karamellusósunni með, fyrir þá sem vilja meira með.
Karamellusósa
200 g sykur
50 ml vatn
100 ml rjómi
50 g smjör
Setjið sykur og vatn saman í pott á miðlungshita. Leyfið blöndunni að malla án þess að vera að hræra í henni þangað til að allur sykurinn er bráðinn, fylgist með þegar hún fær á sig gylltan lit. Þegar hún hefur fengið á sig lit er gott að slökkva undir og bæta rjómanum saman við og hræra á meðan. Hellið í krukku sem hægt er að loka og leyfið að kólna.
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
-
Frétt5 dagar síðan
Veisluþjónusta án starfsleyfis: Matarsýkingar rekjanlegar til rangrar meðhöndlunar hjá veisluþjónustu
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðan
Pílumeistarinn 2025 krýndur á stórskemmtilegu móti veitingafólks – Myndaveisla
-
Keppni3 dagar síðan
Munið skilafrestinn 14. febrúar – Graham’s Blend Series Kokteil keppni 2025
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðan
Eldhús framtíðarinnar: Snjallbúnaður sem sparar tíma, vinnu og orku – Myndbönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Frönsk matargerð í hávegum höfð: Michelin-meistari færir Midland Grand Dining Room á næsta stig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
Nýjustu Michelin-stjörnurnar í Bretlandi og Írlandi – Roux-fjölskyldan fagnar stórsigri
-
Keppni22 klukkustundir síðan
Global Chefs Challenge fer fram á Ítalíu
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Vatnsdeigsbolla með Nutella-kremi og kransabita