Starfsmannavelta
„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
Veitingastaðurinn Sjávarsetrið í Sandgerði hefur lokað dyrum sínum og þar með er kafla lokið í sögu staðar sem vakti athygli allt frá opnun. Það eru þau Arna Björk Unnsteinsdóttir og Símon Haukur Guðmundsson, eigendur Sjávarsetursins, sem greina frá lokuninni í tilkynningu.
Sjávarsetrið opnaði 26. ágúst 2022, líkt og greint var frá hér á veitingageirinn.is í fréttinni „Nýr veitingastaður opnar í Sandgerði“. Við opnun var lögð áhersla á metnað, fagmennsku og skýra sýn um að byggja upp öflugan stað í hjarta bæjarins.
Í tilkynningu eigendanna segir að ákvörðunin hafi verið tekin með þungu hjarta.
„Það er með þungu hjarta sem við tilkynnum að veitingastaðurinn okkar, Sjávarsetrið, hefur lokað og með því lýkur þessu ævintýri,“
segja þau Arna og Símon. Þau þakka gestum, samstarfsaðilum og velunnurum fyrir
„ómetanlegan stuðning, hlý orð, heimsóknir, samveru stundir og traust í gegnum árin“
og segja að það sé fólkið sem hafi gert staðinn að því sem hann varð.
Þá kemur fram að þau hafi lagt í reksturinn alla sína orku.
„Við höfum barist eins lengi og eins mikið og mögulegt var. Lagt hjarta, líf, sál og alla okkar orku í að halda þessu gangandi. Því miður dugði það ekki til,“
segja þau jafnframt.
Rekstur Sjávarsetursins hefur á undanförnum misserum verið til umfjöllunar. Hér á veitingageirinn.is var fjallað um gagnrýni eigenda í fréttinni „Eigandi Sjávarsetursins gagnrýnir harðlega meintan mismun Suðurnesjabæjar á fyrirtækjum“, þar sem komið var inn á samskipti við sveitarfélagið og meintan mismun í garð fyrirtækja. Í kjölfarið birti Suðurnesjabær einnig formlega yfirlýsingu, sem fjallað var um í fréttinni „Tilkynning frá Suðurnesjabæ vegna umfjöllunar um Sjávarsetrið“.
Í nýjustu tilkynningu fara eigendurnir ekki nánar út í ástæður lokunarinnar, en lýsa vegferðinni sem bæði krefjandi og lærdómsríkri.
„Þetta hefur verið ótrúleg vegferð, full af áskorunum, lærdómi, gleði og dýrmætum minningum og tengslum. Þrátt fyrir sorgina erum við óendanlega þakklát fyrir allt fólkið sem við kynntumst og allar minningarnar sem verða með okkur áfram,“
segir í tilkynningunni.
Að lokum þakka þau öllum sem stóðu með þeim.
„Takk fyrir að standa með okkur. Takk fyrir að trúa á okkur. Og takk fyrir að vera hluti af þessari sögu.“
Með lokun Sjávarsetursins hverfur áberandi veitingastaður úr bæjarlífinu í Sandgerði, en eftir sitja minningar, reynsla og saga sem margir tóku þátt í að móta.
Myndir: sjavarsetrid.is
-
Markaðurinn3 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Markaðurinn6 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn4 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Frétt5 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu




