Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Hjá Höllu semur um aðstöðu í Suðurnesjabæ

Birting:

þann

Hjá Höllu semur um aðstöðu í Suðurnesjabæ

Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og Halla María Svansdóttir, eigandi veitingastaðarins Hjá Höllu við undirritun

Vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast í Grindavík í kjölfar náttúruhamfara undanfarið eru mörg atvinnufyrirtæki í Grindavík að leita leiða til að halda starfsemi sinni gangandi annars staðar.

Eitt af þeim fyrirtækjum er veitingafyrirtækið Hjá Höllu, en Halla hefur undanfarið verið að leita að heppilegri aðstöðu fyrir sína starfsemi.

Sjá einnig: Halla leitar að atvinnuhúsnæði

Svo vel vill til að í Vörðunni í Sandgerði er tilbúið framleiðslueldhús, sem hefur verið lítið notað mörg undanfarin ár, að því er fram kemur í tilkynningu frá Suðurnesjabæ sem hafði samband við Höllu fyrir nokkru síðan og benti henni á þann möguleika að nýta eldhúsið fyrir sína starfsemi.

Nú hefur verið gengið frá samningi við fyrirtækið um leigu á eldhúsinu og mun starfsemi Hjá Höllu því fara fram þar.  Ásamt vinnslueldhúsi mun Halla verða með afgreiðslu þar sem viðskiptavinir geta sótt sínar pantanir. Jafnframt mun Halla framleiða vörur fyrir fyrirtækja-og veisluþjónustu sína, ásamt vörum fyrir veitingastaðinn Hjá Höllu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.

Mynd: sudurnesjabaer.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið