Markaðurinn
Bragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
Loksins er kominn súputími! Matar- og bragðmiklar súpur eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Helst þannig að það jaðri við að þær séu pottréttir og þessi er akkúrat þannig. Hún er stútfull af allskonar góðgæti og best finnst mér að láta hana malla lengi. Uppskriftin er líka frekar stór svo hún dugar vel fyrir okkur fjölskylda sem matur í tvo daga en það er einnig hægt að frysta hana í smærri skömmtum og taka með í vinnu og skóla sem nesti.
Þetta sambland af grænmeti, kjöti, rifnum cheddar og kryddum er bara eitthvað svo ómótstæðilegt og til að gera gott enn betra toppa ég súpuna með fersku avocado, sýrðum rjóma og meira af rifnum cheddar.
Innihald
6 skammtar
1 stk. stór laukur
4 stk. hvítlauksrif
5 stk. gulrætur
1 stk. græn paprika
1⁄2 stk. blaðlaukur
2 dósir hakkaðir tómatar
1200 ml vatn
3 stk. nautakraftsteningar
500 g nautahakk
1 msk. olía
1 bréf taco krydd
salt og pipar
1⁄2 krukka taco sósa
80 g tómatsósa
50 g tómatpúrra
150 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
100 g Óðals Cheddar, rifinn
sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
ferskt kóríander
avocado
nachos flögur
250 ml rjómi frá Gott í matinn
Skref 1
- Byrjið á því að saxa laukinn og hvítlaukinn og setjið til hliðar.
- Saxið restina af grænmetinu og takið til öll hráefnin í súpuna.
Skref 2
- Hitið 1 msk. af olíu í stórum potti og steikið laukinn og hvítlaukinn við meðalhita þar til hann er orðinn mjúkur og glær. Passið að brenna ekki laukinn.
- Setjið restina af grænmetinu út í pottinn og steikið áfram.
Skref 3
- Hitið pönnu og setjið smávegis af olíu. Brúnið hakkið og kryddið með taco kryddi.
- Þegar kjötið er gegnum steikt setjið það þá út í pottinn.
- Hellið 1 dl af vatninu út á pönnuna og skafið upp botninn og setjið út í pottinn. Þarna er mjög mikið bragð og með þessu verður súpan enn kraftmeiri.
Skref 4
- Setjið tómatana í dósunum, vatnið, taco sósu, tómatsósu, tómatpúrru og rjómaost út í pottinn ásamt nautakraftinum. Látið malla við vægan hita í helst ekki minna en 1 klst.
- Setjið þá 100g af rifnum Óðals cheddar út í súpuna, þegar hann hefur bráðnað bætið þá rjómanum saman við og smakkið til með salti og pipar.
- Berið fram með meira af cheddar, sýrðum rjóma, ferskum avocado sneiðum og muldum nachos flögum.
Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal – gottimatinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt3 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Frétt5 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHandverksbjór og matarveisla á Hólum
-
Markaðurinn2 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti




