Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Hermann Þór, Hinrik Carl, Sigurður Daði, Ragnar Wess og Ægir gefa út kennslubók – „Þetta verkefni er búið að taka 3 ár hjá okkur….“

Birting:

þann

Hermann Þór, Hinrik Carl, Sigurður Daði, Ragnar Wess og Ægir gefa út kennslubók - "Þetta verkefni er búið að taka 3 ár hjá okkur...."

Út er komin kennslubók fyrir fyrsta þrep matvælabrauta. Höfundar bókarinnar eru matreiðslumeistarnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Sigurður Daði Friðriksson, Ragnar Wessman og Ægir Friðriksson.

Í bókinni er farið yfir helstu grunnatriði sem nauðsynleg eru fyrir áframhaldandi nám og starf í matreiðslu.

Í máli og myndum fá nemendur innsýn í fjölbreytileika matreiðslunnar og áhersla er lögð á að auka þekkingu og færni við meðferð matvæla, matreiðslu hvers konar og nýjungar henni tengdri.

Veisluþjónusta

Þróunarsjóður námsgagna styrkti útgáfuna.

Hægt er að kaupa bókina á vefnum idnu.is hér.

Vefbók

Hermann Þór, Hinrik Carl, Sigurður Daði, Ragnar Wess og Ægir gefa út kennslubók - "Þetta verkefni er búið að taka 3 ár hjá okkur...."

Hægt er að kaupa áskrift að vefbókinni á www.vefbok.is

Vefbókin skiptist í eftirfarandi kafla:

  • Nemandinn og fagvitund
  • Innkaup og móttökueftirlit
  • Matvælaöryggi
  • Hnífar og meðferð þeirra
  • Áhöld
  • Eldunartæki
  • Þrifalýsingar
  • Soð-, sósu-, og súpugerð
  • Meðhöndlun á fiski
  • Meðhöndlun á kjöti
  • Úti- og ylrækt, algengar íslenskar
  • Grænmetistegundir
  • Grunnur að matreiðsluaðferðum
  • Grunnur að eftirréttargerð
  • Algengar korntegundir
  • Fagtengd orð og hugtök
  • Orðskýringar

„Þetta verkefni er búið að taka 3 ár hjá okkur og hefur mikill tími farið í að taka myndir og myndbönd, en það er enginn annar enn Karl Peterson sem sér um myndatöku.“

Segir Hinrik Carl í samtali við veitingageirinn.is

Þetta er fyrsta bókin af þremur sem þeir félagar vinna að og næstu bækur verða gefnar út á komandi árum.

„Mikil tilhlökkun er hjá okkur að geta loksins boðið upp á námsefni sem er aðgengilegt öllum og allir kennarar get notað sama námsefnið um allt land, í öllu grunndeildum landsins.“

Segir Hinrik Carl að lokum.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið