Bocuse d´Or
Sigurjón Bragi í 8. sæti í Bocuse d´Or – Myndir

F.v. Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson, Guðmundur Halldór Bender, Sigurjón Bragi Geirsson, Friðgeir Ingi Eiríksson og Dagur Hrafn Rúnarsson.
Á myndina vantar: Hinrik Örn Halldórsson og Egill Snær Birgisson
Mynd: Hallur karlsson
Sigurjón Bragi Geirsson náði 8. sæti í Bocuse d´Or heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu sem haldin var í Lyon 22. – 23. janúar.
Úrslitin voru tilkynnt í dag kl. 17.30 á íslensku tíma. 24 Þjóðir kepptu til úrslita eftir að hafa unnið sér inn þátttökurétt í undankeppnum í sínum heimsálfum. Danmörk vann til gullverðlaun, Noregur í 2. sæti og Ungverjaland í 3. sæti.
Bocuse d´Or er virtasta matreiðslukeppnum heims og eru þátttakendur meðal fremstu matreiðslumanna sinna landa. Keppnin er því hörð og miklar kröfur gerðar til keppenda.
Glæsilegur árangur
Sigurjón Bragi hafði 5 ½ klukkustund til þess að matreiða þriggja rétta matseðil og fiskfat fyrir 24 dómara.
Fyrra verkefnið hét „Feed the kids“, og var þriggja rétta mmatseðill með butternut grasker sem aðalhráefni. Svo fiskfat með skötusel sem aðalhráefni og þurfti líka að nota bláskel í ragú til hliðar.
Afraksturinn var sannkallað listaverk og var annars vegar borinn fram á fallegum diskum og hins vegar á glæsilegu silfurfati.
Allt gekk samkvæmt áætlun og voru Sigurjón, Guðmundur aðstoðarmaður hans og Sigurður þjálfari að vonum hæstánægðir með úrslitin. Þjálfari Sigurjón er Sigurður Laufdal, Bocuse d´Or keppandi 2021, og aðstoðarmaður er Guðmundur Bender.
Myndir af keppnisréttum Sigurjóns
Hér má sjá framlag Sigurjóns Braga til keppninnar. Myndir: Bocusedor.com. Hægt er að skoða íslenska bæklinginn með því að smella hér.
Góður árangur íslenskra keppenda í Bocuse d´Or
Keppnin Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 en fyrsti íslenski keppandinn tók þátt árið 1999. Það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar ávallt verið í níu efstu sætunum en bestum árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 náðu þeir báðir í bronsverðlaun.
Bocuse d´Or akademían á Íslandi er hópur fyrrverandi keppenda sem heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni.
Bocuse d´Or kynningarmyndband íslenska liðsins
Íslenska liðið í heild sinni
Kandítat: Sigurjón Bragi Geirsson
Aðstoðarmaður Sigurjóns er: Guðmundur Halldór Bender
Aðstoðarmenn:
Dagur Hrafn Rúnarsson
Hinrik Örn Halldórsson
Egill Snær Birgisson
Þjálfari: Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson
Dómari í Lyon fyrir hönd Íslands: Friðgeir Ingi Eiríksson
Leiðrétting 23. janúar 2023, kl. 22:30:
Þau leiðu mistök urðu í fréttatilkynningu frá Bocuse d´Or akademíunni er að Ísland fékk ekki verðlaun fyrir besta fiskréttinn og leiðréttist það hér með og hefur fréttin verið uppfærð samkvæmt því.

-
Keppni2 dagar síðan
Þessir fimm keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2025 – Grænmetiskokkur ársins fer fram á morgun
-
Keppni3 dagar síðan
Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins – Spennandi helgi framundan
-
Keppni10 klukkustundir síðan
Fréttavaktin: Kokkur ársins 2025
-
Keppni3 dagar síðan
Fréttavaktin: Forkeppni um Kokk ársins 2025
-
Keppni1 dagur síðan
Fréttavaktin: Grænmetiskokkur ársins 2025
-
Keppni2 dagar síðan
Landslið kjötiðnaðarmanna komið til Parísar – Heimsmeistaramótið framundan
-
Keppni13 klukkustundir síðan
Stóra stundin runnin upp – Úrslitakeppni Kokkur ársins 2025 fer fram í dag – Myndaveisla frá forkeppni Kokkur ársins og Grænmetiskokkur ársins
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Gefðu hlutunum nýtt líf – skoðaðu úrvalið hjá Efnisveitunni