Vertu memm

Keppni

Umsókn um þátttöku á Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema

Birting:

þann

Veitingahús - Veitingastaður - Borð

Íslandsmótið fer fram þriðjudaginn 1. nóvember nk. og hefst kl. 14:00.

Tveir stigahæstu einstaklingarnir úr Íslandsmótinu í hvorri grein munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem verður haldin í Osló í apríl 2023.  Keppnisréttur er bundinn við aldur.  Keppendur mega ekki vera eldri en 23 ára þann 1. maí 2023 og skilyrt er að nemar séu á námssamningi í maí 2023.

Keppnin í matreiðslu skiptist í:

  • þekking á hráefni og skriflegt próf úr þeim hluta
  • verklegum hluta þar sem þátttakendur matreiða forrétt og eftirrétt

Keppnin í framreiðslu skiptist í: 

  • skriflegt próf
  • blöndun tveggja drykkja
  • kvöldverðaruppdekkning ásamt blómum –  fjórir réttir fyrir tvo gesti
  • eldsteiking
  • fjögur sérvettubrot

Ekki er ætlast til að að keppendur hafi aðgang að hjálpargögnum við úrlausn verkefnisins.

Fylltu út formið á vefnum Idan.is til að sækja um þátttöku. Umsóknarfrestur er til 21. október 2022.

Mynd: úr safni

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið