Frétt
Matvælaráðherra úthlutar 584,6 milljónum úr Matvælasjóði
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað 584,6 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 58 verkefni styrk en 211 umsóknir bárust til sjóðsins.
Meðal þeirra fjölbreyttu og áhugaverðu verkefna sem fengu úthlutun má nefna:
- Hringrásarhænur í bakgörðum
- Þróa sælkeravöru úr lamba- og kindaslögum
- Markaðsátak í útflutningi á íslensku viskýi
- Aukin bragðgæði og áferð íslensks fisks með hægmeyrnun
- Visthæfing landeldis
- Bætiefnadrykkir með íslenskum þörungum
- Eftirlit og upprunavottun fyrir íslenskar saltfisksfurðir
- Próteinframleiðsla úr grasi
- Frumþróun bragðefna úr þangi fyrir austurlenskan mat
- Viðskiptaáætlun fyrir mjólkurfé og sauðaostagerð
- Folaldajerky og -hrápylsur
- Verðmætasköpun úr hliðarafurðum bjórgerðar
„Sá sköpunarkraftur og sú áræðni sem íslenskir matvælaframleiðendur búa yfir er sérstakt ánægjuefni og sýnir áþreifanlega að Ísland er á réttri leið sem matvælaland. Það gleður mig einnig að sjá að hlutföll á milli kynja eru nær jöfn,“
segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Matvælasjóður veitir styrki í fjórum styrkjaflokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði.
Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkþegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa hugmynd, hráefni eða aðferðir sem tengjast íslenskri matvælaframleiðslu.
Kelda styrkir verkefni sem miða að því að afla nýrrar þekkingar sem styður við markmið sjóðsins um nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.
Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar. Styrkveitingar miða að því að gefa styrkþegum tækifæri til að móta og þróa afurðir úr hráefnum sem falla til við matvælaframleiðslu og stuðla þar með að verðmætasköpun.
Fjársjóður styrkir verkefni sem hafa það markmiði að styrkja markaðsinnviði og stuðla að markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.
Svarbréf verða send öllum umsækjendum á næstu dögum.
Opnað verður fyrir umsóknir fyrir næstu úthlutun úr Matvælasjóði á vormánuðum 2023.
Nánari upplýsingar um úthlutun sjóðsins hér.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Íslandsmót barþjóna6 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt5 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Markaðurinn4 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslensk matargerð í sviðsljósinu í Barcelona




