Smári Valtýr Sæbjörnsson
Verkefnið Sjávarréttaeldhús fékk 1 milljón króna í styrk
Verkefnið „Seafoodkitchen, Travel, Try and Taste in Sandgerði“ fékk 1 milljón króna styrk úr Vaxtarsamningi Suðurnesja í síðustu viku. Þetta var fjórða úthlutun styrkja úr samningnum en samtals hefur verið úthlutað 100 milljónum króna, en hægt er að lesa til um öll verkefnin sem fengu styrk í síðustu viku með því að smella hér.
Seafoodkitchen snýst um að búa til tekjur af ferðamönnum með því að bjóða þeim í ferðalag og heimsókn í áhugavert sjávarréttaeldhús þar sem þeim býðst að elda sjálfir gæðamat úr sjávarfangi. Ferðalaginu lýkur með því að borða heimatilbúna hollusturétti undir leiðsögn matreiðslumeistara í náttúrlegu sjávarumhverfi þar sem lífið er fiskur.
Verkefnið er samstarfsverkefni Skref fyrir skref ráðgjöf (Sfs) sem meðal annars rekur
Farskóla Ferðaþjónustunnar í Sandgerði og Vitans sem er einn af elstu veitingastöðum landsins.
Rekstaraðilar Vitans hafa mikla reynslu í þróun á sjávarfangi og hafa t.d. unnið í nokkur ár með Þekkingarsetrinu í Sandgerði í samstarfi við Háskóla Ísland að því að matreiða og kynna grjótakrabba sem er nýr og spennandi landnemi við Íslandsstrendur
, sagði Hansína B. Einarsdóttir annar eigandi af Sfs og verkefnastjóri Seafoodkitchen í samtali við veitingageirinn.is.
Skref fyrir skref hefur s.l ár unnið að nokkrum könnunum hérlendis þar sem m.a. hefur verið reynt að skoða hvernig þarfir og áhugi ferðamanna hefur verið að breytast og verkefnið Seafoodkitchen er m.a. hugsað sem vara til þess að mæta þessum áhuga.
Mynd frá úthlutun styrkja úr Vaxtarsamningi Suðurnesja: vf.is
![]()
-
Markaðurinn7 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Frétt5 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun20 klukkustundir síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun17 klukkustundir síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans




