Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Ný og glæsileg mathöll opnar í miðju „Wall street“ Íslands
Þrátt fyrir einstaka tíma þá eru margir bjartsýnir á framtíðina í dag, en núna næstu daga ætla eldhressir stórhugar að opna eina glæsilegustu mathöll bæjarins í Borgartúninu.
Ég kíkti aðeins í heimsókn í vikunni og spjallaði stutt við aðstandendur og smellti af nokkrum myndum í leiðinni. Stefnt er að því að opna formlega 18. Mars nk en einhverjar smá tafir hafa verið sökum utanaðkomandi tæknilegra vandamála en það er allt að leysast núna.
Óhætt er að segja að þetta verður spennandi flóra veitingastaða en þarna verður: Hipstur, La Masa sem er mexican taco, Wok On sem flestir þekkja, Umami Sushi með Axel B í forsvari, Svala-Barista, Yuzu, Natalía sem er Napoletana pizzeria og síðan Bál – Grill og vínbar.
Þetta er gríðarlega flottur hópur sem þarna verður saman komin og aðstaðan er einu orði glæsileg og töluvert öðruvísi en við eigum að venjast hér heima. Staðsetningin er einnig frábær en Borg 29 er í miðju Borgartúninu mitt í „Wall street“ Íslands og með frábæru aðgengi.
Hér koma nokkrar myndir en veitingageirinn.is mun fylgjast vel með og birta fleiri myndir síðar.
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember










