Markaðurinn
Ylmurinn í eldhúsinu er svo lokkandi…Nýtt frá Kryddhúsinu
Hátíðarkryddblöndur Kryddhússins eru Jólaglöggskryddblandan og Kalkúnakryddið, jurtablanda.
Handgerða Jólaglöggskryddsblanda Kryddhússins er nú fáanleg.
Hún er dásamleg í glögg, áfengt sem og óáfengt. Hér koma saman „jóla“krydd eins og kanill, stjörnuanís, allrahanda, negull og fleiri dásamleg, náttúrulega sæt og vermandi krydd ásamt þurrkaðri appelsínu. Öll þessi brögð fara svo vel með t.d. svínakjöti þannig að það er tilvalið að nota hana í að krydda purusteikina.
Einnig dásamleg í sýrópið fyrir kokteilinn eða í eftirréttasósuna m.m.
Ylmurinn í eldhúsinu verður lokkandi þegar þessi blanda er hituð og hún færir svo sannarlega jólin til þín og þinna!
Kalkúnakrydd, jurtablanda er ný fyrir þessi jól. Hér notar Omry eigandi Kryddhússins dásamlegar klassískar jurtir eins og salvíu, steinselju, timían ofl. nema hvað hann bætir um betur og setur myntu, kóríanderlauf, basilikku ofl. sem dýpkar bragð og tekur bragðlaukana á vit ævintýranna! Kryddið er að sjálfsögðu án allra aukefna og Vegan eins og öll kryddlína Kryddhússins.
Heimasíða: www.kryddhus.is
-
Markaðurinn7 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Frétt5 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun21 klukkustund síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun24 klukkustundir síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi









