Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Mikið álag hjá Domino’s – 450 manns á vakt

Birting:

þann

Dominos

Dominos - Twitter umræðaÞjóðin kýs að sleppa við eldamennsku og einbeita sér að landsleiknum en Domino‘s hefur aldrei fengið jafn margar pantanir líkt og í kvöld, og þó hefur gengið vel að standa við uppgefna biðtíma, en lengsti biðtími var 120 mín og hvorki meira né minna en 450 manns á vakt.

Dominos - Twitter umræðaPantanafjöldinn síðustu þrjá klukkutímanna er án fordæma í sögu Domino‘s á Íslandi.  Tugþúsundir hafa reynt að panta pítsur hjá fyrirtækinu á sama tíma. Heimasíðan er undir miklu álagi, sem og pantana-app fyrirtækisins og þjónustuver. 160 símalínur eru í þjónustuveri fyrirtækisins og hafa þær allar verið uppteknar síðasta klukkutímann. Ekkert kvöld er sambærilegt, hvorki Eurovision né fyrri íþróttaleikir hafa leitt til jafn mikils álags.

Domino‘s vill koma því á framfæri að fyrirtækið hafði undirbúið sig vel fyrir þennan dag en fjöldinn er samt töluvert meiri en búist hafði verið. Starfsfólk Domino‘s vildi alls ekki gera neitt til að skemma þetta sögulega kvöld fyrir viðskiptavinum en mjög vandasamt er að afgreiða þetta mikla magn pantana á svo skömmum tíma.  Biðtímar urðu því mun lengri í kvöld en annars er vaninn hjá fyrirtækinu og var lengsta biðin upp í 120 mínútur í sumum hverfum. Þess má geta að afkastageta á hvern útsölustað er meiri hér á landi en í öðrum löndum.

Stjórnendur eru ánægðir með að tekist hefur að standa við uppgefna biðtíma, bæði í heimsendingu og þegar sótt er á staðinn. Nokkuð sem getur verið mjög vandasamt á „sprengjukvöldum“ eins og þessu.

Myndir: aðsendar

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið