Frétt
Kristján Þór: „Við Íslendingar erum matvælaþjóð“ – Gréta María stýrir Matvælasjóði
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað stjórn Matvælasjóðs. Alþingi samþykkti nýverið frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.
Matvælasjóður verður til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi. Unnið hefur verið að stofnun sjóðsins undanfarið ár í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en ákveðið var að flýta vinnu við að setja sjóðinn á fót sem hluta af aðgerðum til að bregðast við áhrifum COVID-19. Alls verður 500 m.kr. varið til stofnunar sjóðsins á þessu ári.
Stjórnin er skipuð til þriggja ára og er þannig skipuð:
Gréta María Grétarsdóttir, án tilnefningar, formaður.
Gunnar Þorgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
Karl Frímannsson, án tilnefningar
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:
„Við Íslendingar erum matvælaþjóð. Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands.
Því er stofnun Matvælasjóðs, með áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælaframleiðslu.“
Mynd: Stjórnarráð Íslands
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMyndir: Bakaradeildin í Hótel- og matvælaskólanum tók þátt í Tyllidögum
-
Frétt2 dagar síðanGrunur um salmonellu í kjúklingalærum frá Stjörnugrís
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndir: Veislusýning Múlabergs fór fram úr væntingum
-
Keppni1 dagur síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Frétt5 dagar síðanReyndir fagmenn skipa nýja stjórn Klúbbs Framreiðslumeistara
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Markaðurinn7 dagar síðanGlæsileg sýning í Höllinni
-
Food & fun5 dagar síðanÞessir gestakokkar heimsækja Ísland í tilefni Food & Fun





