Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt veitingahús opnar á Grenivík – Milli Fjöru & Fjalla
Eftir langan vetur án veitingahúss á Grenivík er nú að rofa til. Fjölskyldufyrirtækið Milli Fjöru & Fjalla ætlar að opna Mathús í húsnæði fyrrum Kontorsins.
Eigendur fyrirtækisins, þau Halla Sif Guðmundsdóttir, Einar Rafn Stefánsson og Ágúst Logi Guðmundsson, eru full tilhlökkunar að segja frá því að fjölskyldufyrirtækið í Fagrabæ, Milli Fjöru & Fjalla, færir nú út kvíarnar og opnar nýtt veitingahús og vinnslurými á Grenivík;
„Staðurinn hefur fengið nafn og á að heita Mathús Milli Fjöru & Fjalla. Áætlað er að opna fyrir gestum og gangandi í júlí 2020, þannig að allir ættu að geta lagt leið sína til okkar í Mathúsið á Grenivík með sumrinu.
Milli Fjöru & Fjalla framleiðir vörur sem falla til í sauðfjárrækt og hefur haft það sem megin markmið allt frá fyrsta degi að neytandinn kunni að meta afurðirnar og þekki gæði þeirra og margbreytileika. Til viðbótar við okkar hefðbundnu framleiðslu þá mun Mathús Milli Fjöru & Fjalla í samstarfi við aðra, bæta fiski, grænmeti og fleiru við sitt vöruúrval. Enda liggur það mjög vel við þar sem nafnið á fyrirtækinu inniheldur bæði fjöru og fjalla.
Mathúsið mun leggja ríka áherslu á að þjónusta breiðan hóp viðskiptavina og bjóða uppá allt það besta sem í hreppnum býr. Þar verður veitingastaður, kaffihús, bar og kjötvinnsla rekin allan ársins hring. Mathúsið verður einskonar miðstöð menningar og tónlistalífs í Grýtubakkahreppi sem er unnið í góðu og tryggu samstarfi við þau félög og fyrirtæki sem í hreppnum eru“.
Að því er fram kemur á grenivik.is.
Mynd: grenivik.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn3 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum




