Freisting
Þorrablót Keflvíkinga slegið af

Ekkert verður af fyrirhuguðu þorrablóti sem knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir Keflavíkur höfðu ráðgert að halda í sal íþróttahússins við Sunnubraut þann 25. janúar næstkomandi. Ástæðan er sú að framkvæmdaraðilar fengu ekki tilskilin leyfi til að halda skemmtunina, þar sem um 500 manns áttu að koma saman.
Guðmundur Steinarsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Keflvíkinga og einn af aðstandendum skemmtunarinnar, sagði í samtali við Víkurfréttir að þessi málalok væru mikil vonbrigði.
Við erum bara hundfúlir þar sem þetta er okkar stærsta fjáröflun fyrir æfingaferðum erlendis. Við vorum búnir að sækja um öll leyfi til lögreglunnar og þeir sannfærðu okkur um að þetta yrði ekki neitt mál.
Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, tók húsnæðið út að ósk lögreglu og sagði aðspurður að húsnæðið væri afar óhentugt með tilliti til brunavarna. Húsið er einfaldlega ekki hannað fyrir skemmtanahald og þar eru ekki nægjanlegar brunavarnir fyrir 500 manna samkomu. Það er margt sem kemur þar inn en meðal annars fengum við ekki nægar upplýsingar frá aðstandendum skemmtunarinnar.
Guðmundur er einnig ósáttur við að Keflvíkingar hafi ekki fengið nægilegar upplýsingar um hverju þyrfti að skila til yfirvalda. Svo skiljum við ekki hversvegna svona skemmtanahald er leyfilegt í íþróttahúsum á öðrum svæðum en ekki á Suðurnesjum. Þessi mál virðast ekki vera á hreinu og það þarf að taka þau til endurskoðunar.
Þorrablótið var því blásið af þetta árið, en Guðmundur segir að þeir muni koma til með að halda blót að ári. Ég vil bara biðja þá sem hafa orðið fyrir ónæði, til dæmis þá sem voru búnir að panta miða eða ráða sig í vinnu á kvöldið, afsökunar. Við munum hins vegar halda þorrablót á næsta ári hvort sem það verður hér eða í öðru bæjarfélagi.
Greint frá í Víkurfréttum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt1 dagur síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt5 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni4 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni2 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni2 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís





