Frétt
Ferskar kjötvörur fá heimild til að e-merkja forpakkaðar vörur
Neytendastofa veitti nú í mánuðinum fyrirtækinu Ferskar kjötvörur ehf. heimild til að e-merkja ákveðnar vörur frá þeim. Um er að ræða nautgripahakk og nokkrar stærðir að hamborgurum.
Notkun á e-merki á forpakkaðar vörur er einungis heimil þeim fyrirtækjum sem uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 437/2009 um e-merktar forpakkningar. Í því felst að Neytendastofa hefur tekið út pökkunarferlið og framkvæmt úrtaksvigtun þar sem staðfest er að magn vörunnar sem ætlað er að e-merkja er ávallt innan þeirra marka sem krafist er.
Þetta þýðir að kaupandi vörunnar á að geta treyst því að raunmagn vörunnar er í samræmi við uppgefið magn á pakkningu. Framleiðsluferlið varðandi vigtun vörunnar er það traust að varan á að vera innan leyfilegra fráviksmarka og eins á framleiðslulotan að vera í samræmi við leyfða meðaltalsvigt.
Staðsetning e-merkis er við hliðina á magnmerkingu vörunnar og því ætti að vera auðvelt fyrir neytendur að skoða hvort þessi vottun á magni vörunnar er til staðar.
Mynd: Neytendastofa
-
Keppni6 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Keppni2 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Markaðurinn2 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Bocuse d´Or1 dagur síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Starfsmannavelta14 klukkustundir síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski




