Vertu memm

Food & fun

Nicola Fanetti er Food & Fun kokkur 2019

Birting:

þann

Essensia - Food and Fun 2019 - Nicola Fanetti

Frá úrslitum í dag.
Nicola Fanetti.
Mynd: facebook / Food and Fun festival

Food & Fun kokkur 2019 er Nicola Fanetti en hann var gestakokkur á Essensia.

Nicola Fanetti ólst upp í norðurhluta Ítalíu en þaðan sækir hann innbástur í matargerð sína. Nicola hefur unnið á mörgum af þekktustu veitingahúsum Ítalíu og Danmörku. Hann er einn af stofnendum Brace í Danmörku þar sem hann sameinar ítalska og norræna matreiðsluhætti.

Essensia - Food and Fun 2019 - Brian Canipelli

Nicola Fanetti ásamt starsfólki á Essensia.
Mynd: facebook / Essensia

Nicola bauð upp á skemmtilegan matseðil á Essensia:

  • Smakk: Brace Carbonara.
  • Forréttur: Bleikju Carpaccio, pistasíukrem, skessujurt, hvannarfræ, vatnakarsi.
  • Milliréttur: Saltfisks Ravioli, Pecorino ostakrem, þurrkað sölduft, ítalskir vetrar jarðsveppir “Trufflur”
  • Aðalréttur: Lambahryggur, grillaður blaðlaukur, lyngkrydd, þurrkuð bláber, sveppasósa
  • Eftirréttur: Timian ís, sultaðar blóðappelsínur, heslihnetu crumble, sezchuan pipar karamella.

Herlegheitin kostaði 8900 krónur.

Fleiri Food and Fun fréttir hér.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið