Frétt
50 kíló af lambakjöti hjá Samhjálp
„Það spurðist greinilega út að við myndum vera þarna, þannig að það mættu enn fleiri en gengur og gerist,“ segir Árni Þór Arnórsson, verkefnastjóri Alþjóðadags matreiðslumeistara, en alls 7 matreiðslumeistarar elduðu ofan í skjólstæðinga Samhjálpar í dag í tilefni af alþjóðadegi matreiðslumanna. Alls telur Árni að um 200 manns hafi mætt í dag.
Boðið var upp á morgunmat í húsnæði Samhjálpar frá klukkan 11. „Við byrjuðum svo að framreiða lambasteikina klukkan tvö. Lambalærið var með hefðbundnu sniði svona eins og sunnudagssteikin, með rauðkáli, grænum baunum og sykurhúðuðum kartöflum eins og öllum finnst gott,“ segir Árni. Af þeim 7 sem elduðu matinn eru þrír meðlimir kokkalandsliðsins, þar á meðal matreiðslumaður ársins, að því er fram kemur á mbl.is.
![]()
-
Markaðurinn7 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Frétt5 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi



