Freisting
Tvær íslenskar matreiðslubækur sigurvegarar í París

11. febrúar síðastliðin veitti Gourmand akademían verðlaun fyrir bestu uppskriftabækururnar sem valdar voru úr gríðarlegum fjölda og urðu tvær íslenskar bækur fyrir valinu. Önnur verðlaun í flokki fiskiuppskriftabóka fékk Spriklandi lax í boði veiðikokka og í flokki franskra matreiðslubóka fékk bókin Sælkeragöngur um París og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu þriðju verðlaun. Það er Bókaútgáfan Salka sem gefur þær út.
Heimsfrægir matreiðslumenn tóku þátt í keppninni, og meðal verðlaunahafa voru Jamie Oliver, Alain Ducasse og Michel Troisgros.
Árið 2007 fékk bókin Delicious Iceland, sem SALKA gaf út sérstök heiðursverðlaun eftir að hafa fengið tilnefningu í þremur flokkum; bestu ljósmyndir í matreiðslubók, bestu uppskriftir og besta sögulega uppskriftabókin.
Spriklandi lax í boði veiðikokka
Lesa nánar um bókina hér
Þar segja kokkar nokkurra veiðihúsa frá hinu sérstaka lífi á árbakkanum og deila með lesendum sínum bestu laxauppskriftum. Bæði er um að ræða einfalda ferska rétti og ofurlítið flóknari þar sem notaðar eru nýstárlegar kryddjurtir og aðferðir. Lárus Karl Ingason á heiðurinn af ljósmyndunum en Bjarni Brynjólfsson og Loftur Atli Eiríksson sáum um textagerð. Bókin er 126 bls., skreytt glæsilegum litmyndum.
Sælkeragöngur um París – og 60 uppskriftir að hamingjunni á Parísarvísu
Sjá nánar um bókina hér
Bókin er eftir mæðgurnar Sigríði Gunnarsdóttur og Silju Sallé. Sigríður hefur búið öll sín fullorðinsár í Frakklandi, í bókinni leiðir hún lesendur um hverfi Parísarborgar sem eru tuttugu talsins. Hún lýsir hverju hverfi fyrir sig, íbúum þess, lífi og sögu. Í lok hvers kafla eru síðan dásemdaruppskriftir að forrétti, aðalrétti og eftirrétti að hætti hverfisins og Parísarbúa. Bókin er skreytt glæsilegum myndum Silju af réttunum og mannlífi borgarinnar.
Heimasíða Sölku forlag: www.salkaforlag.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Markaðurinn6 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn5 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Frétt4 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 klukkustundir síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi


