Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Uppbygging á Hótel Reykjavík í Lækjargötu að hefjast
Nú styttist í að uppbygging á glæsilegu fjögurra stjörnu hóteli hefjist við Lækjargötu. Stjórnarformaður Íslandshótela hf, Ólafur D. Torfason, hefur undirritað samning við TVT – Traust Verktak um byggingastjórn á reitnum en mun þetta verða fimmta hótelið sem TVT ehf. reisir fyrir Íslandshótel hf.
Á reitnum, þar sem hús Íslandsbanka var til margra ára, mun rísa 125 herbergja hótel auk veitingastaðar og verður allur aðbúnaður fyrsta flokks. Fullt tillit hefur verið tekið til staðsetningar og umhverfis í öllu ferlinu. Þess má geta að fornleifarannsóknir á vegum Minjastofnunar Íslands og Fornleifastofnunar Íslands hafa leitt í ljós mannvirki frá 10. öld en talið var í fyrstu að eingöngu væri að finna þarna minjar frá 18. og 19. öld.

Frá undirritun: Guðmundur K. Kjartansson og Ólafur Sæmundsson frá TVT ehf. Á milli þeirra er Ólafur D. Torfason stjórnarformaður Íslandshótela hf.
Gestir hótelsins munu því geta skyggnst inn í fortíðina á meðan á dvöl þeirra stendur en Íslandshótel hefur um langt skeið átt í góðu samstarfi við Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafn tengt öðrum hótelum innan keðjunnar.
Áætlað er að framkvæmdir við uppsteypu hefjist í sumar og að framkvæmdum verði lokið um mitt ár 2020.
Íslandshótel á og rekur í dag 18 hótel og fasteignir hringinn í kringum landið og er ein af stærstu hótelkeðjum landsins.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn5 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn4 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Keppni4 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni4 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
-
Markaðurinn3 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?




