Uncategorized
Hvatningaverðlaun Vínþjónasamtakanna
Vínþjónasamtökin hafa í annað skipti afhent Hvatningaverðlaun til aðila sem hefur „stuðlað að vínmenningu á landinu með því að bjóða víni á aðgengilegu verði“. Í fyrra hlaut Fríhöfnin þau verðlaun en í ár er það Arnar Bjarnason, sem rekur eins manns fyrirtæki Vín og Matur www.vinogmatur.is
Hér er hlutur af ræðunni sem rökstuddi valið:
“ Á tíma þennslunnar sótti hann nýja framleiðendur heim og valdi vandlega nokkra þeirra sem höfðu öðlast frægð á heimsmarkaðnum (eða ekki) en voru líka sérstakir persónuleikar sem mynduðu persónutengsl. Hann stækkaði sjóndeildarhringinn, sinn og annarra, að miklu leyti af hugsjón. Hann hélt okkur við efni og kynnti fyrir okkur vínbændum sem eiga ekki erindi í heimsvæðingu og eru lífandi tákn síns héraðs. Hann minnir okkur stöðugt á að hafa gæði að leiðarljósi en ekki gefa eftir í auðvelda sjónarmiðið þetta er svo vinsælt, hann minnir okkur á að gera kröfur.
Hann vinnur einn og er flokkaður sem eins manns birgi, en hann nær þó að halda uppi fróðlegri kröftugri heimasíðu, markvissu fréttabréfi þar sem skín hans kimnigáfa, hann slakar ekki á gæðum og lætur ekki ginnast af massaframleiðslu vínheimsins.
Hann á skilið að fá alla hvatningu sem hægt er að veita til að halda áfram á þeirri braut og það sérstaklega á erfiðum tímum því við þurfum öll að fá smá hlutdeild í hans hugsjón og jákvæðni.
Hann heitir Arnar Bjarnason og þekktur sem Arnar í Vín og Mat.“
Dominique.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt6 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt5 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn2 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Food & fun1 dagur síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn




