Vertu memm

Bocuse d´Or

Bocuse d´Or: Allt komið á fullt – Úrslit verða kynnt í dag

Birting:

þann

Bocuse d´Or 2017

Sigurður Helgason þjálfari, Hinrik Örn Lárusson aðstoðarmaður, Viktor Örn Andrésson Bocuse d´Or 2017 og Sturla Birgisson dómari.
Mynd: sirha.com

Viktor Örn Andrésson sem keppir fyrir hönd Íslands í Bocuse d´Or byrjaði að keppa í morgun og honum til aðstoðar er Hinrik Örn Lárusson.

Hægt er að fylgjast vel með í beinni útsendingu hér, en Viktor skilar fiskréttinum klukkan 12:50 og kjötréttinum klukkan 13:25.

Úrslitin verða síðan kynnt við hátíðlega athöfn í dag klukkan 17:00 á íslenskum tíma.

Meðfylgjandi myndir eru frá því í morgun, Viktor og Hinrik með allt á hreinu enda búnir að æfa í marga mánuði og ekki má gleyma stuðningsmannasveitinni, en hún lét heyra vel í sér þegar kynnarnir kynntu íslenska liðið.

Bocuse d´Or 2017

Viktor Örn Andrésson yfirvegaður og pollrólegur

Bocuse d´Or 2017

Hinrik Örn Lárusson líka yfirvegaður og pollrólegur

Bocuse d´Or 2017

Sigurður Helgason þjálfari í viðtali og Sturla Birgisson dómari (lengst til vinstri) fylgist vel með

Bocuse d´Or 2017

Glæsileg stuðningsmannasveit

Bocuse d´Or 2017

Viktor Örn Andrésson og Hinrik Örn Lárusson fara aðeins yfir hlutina

 

Bocuse d’Or er allra virtasta matreiðslukeppni sem haldin er í heiminum og verið haldin síðan 1987 og komast færri þjóðir að enn vilja.  24 þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa sigrað forkeppni úr sinni heimsálfu og fimm efstu sætin í sjálfri Bocuse d’Or keppninni tryggja þeim þjóðum sjálfkrafa keppnisrétt í næstu keppni. Bocuse d’Or er oft kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu.  Í ár fer keppnin fram dagana 24. og 25. janúar 2017 samhliða Sirha sýningunni í Lyon í Frakklandi.

Myndir: Skjáskot úr beinu útsendingunni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið