Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Sushisamba verður Sushi Social

Birting:

þann

Sushi Social

„Sushi Social er nýja nafnið okkar og við erum að fíla það í botn!“

, segir í tilkynningu frá veitingastaðnum Sushi Social, betur þekktur sem SushiSamba á facebook síðu staðarins.

Nafnið vísar bæði í djúsí sushi-ið sem staðurinn er þekktastur fyrir og líka í stemninguna, tengslin og það samfélag sem er staðurinn, gestirnir og að njóta og hafa gaman saman.  Á næstu dögum breytist nafnið á vefnum, heimasíðunni þeirra, inni á staðnum o.s.frv.

Ekkert annað mun breytast, ennþá sami góði maturinn, sama djúsí sushi-ið, sömu góðu kokteilana og stemninguna.

Sushi Social

Forsagan er sú að erlenda veitingakeðjan Samba, sem rekur veitingastaði undir nafninu Sushisamba, höfðaði mál gegn eigendum Sushisamba í Þingholtsstræti. Töldu þeir að verið væri að nota nafnið í leyfisleysi þar sem þeir töldu sig eiga einkarétt á nafninu á alþjóðavísu. Íslenski staðurinn tapaði málinu fyrir Hæstarétti og þarf þ.a.l. að skipta um nafn.

Myndir: facebook / Sushi Social Reykjavik

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið