Bocuse d´Or
Við erum á leið til Lyon í janúar
Nú rétt í þessu var verið að tilkynna úrslitin í undankeppni Bocuse d´Or Europe og eru þau eftirfarandi:
1. sæti Danmörk
2. sæti Noregur
3. sæti Frakkland
4. sæti Bretland
5. sæti Svíðþjóð
6. sæti Finnland
7. sæti Sviss
8. sæti Ísland
Þráinn var frekar svekktur en þó glaður að komast áfram og er þegar byrjaður að plana æfingar fyrir aðalkeppnina, sagði Atli Þór Erlendsson sérlegur fréttaritari í Genf í samtali við Freisting.is.
Það voru 20 þjóðir sem kepptu í Sviss núna og voru 12 þjóðir sem komust áfram í sjálfa aðalkeppnina, en hún verður haldin í Lyon í Frakklandi í janúar 2011 og eru 24 þjóðir sem keppa þá.
Svíar fengu sérstök verðlaun fyrir fisk diskinn og Bretar fengu verðlaun fyrir kjöt diskinn. Í verðlaunaahendingunni var tilkynnt að næsta undankeppni verður í Belgíu árið 2012.
Nú á næstu dögum munum við birta myndbönd og fjölmargar myndir af ferð íslenska Bocuse hópnum í Genf í Sviss.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Markaðurinn5 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Frétt3 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Frétt19 klukkustundir síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Markaðurinn6 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka



