Vertu memm

Freisting

Íslandsmeistaramót Barþjóna á sunnudaginn

Birting:

þann

Íslandsmeistaramót Barþjóna verður haldið 18. apríl næstkomandi á Broadway. Húsið opnar klukkan 19°° og hefst sjálf keppnin klukkan 20°°.  Það er Barþjónaklúbbur Íslands sem á veg og vanda af skipulagningu keppninnar.

Keppt verður í flair, klassík og veitingahúsakeppni og mega keppendur ráða hvort þeir blanda sætan drykk, Þurran drykk, longdrinks eða fancy, má þó ekki vera skot eða heitir drykkir. Keppt verður eftir reglum BCI.

Mjólkurvörur sem heimilt er að nota eru nýmjólk og rjómi.  Einnig er heimilt að nota egg. Hér við bætist skyr, eingöngu óbragðbætt skyr oft nefnt bláa skyrið frá MS og kókómjólk hin eina sanna. Drykkir sem innihalda þessi viðbótarefni flokkast undir Fancy-drykki.

3. bekkingar sem eru að klára sveinspróf í maí í Hótel og matvælaskólanum hafa keppnisrétt og þurfa að vea einkennisfatnaði B.C.I.

Keppendur eru velkomnir að koma með sín eigin glös.

Kynnar verða hinir einu og sönnu Hallgrímur Ólafsson og Guðjón Davíð Karlsson

Nánari upplýsingar er hægt að lesa á vef Barþjónaklúbbs Íslands www.bar.is

Úrslitin verða kunngjörð sunnudagskvöldið og verða þau birt hér á freisting.is.

/Smári

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið