KM
Þakkarbréf til birgja vegna keppninnar um matreiðslumann ársins 2008

Til þess að halda svona keppni þarf margar hendur og í mörg horn er að líta. Velja þarf keppnisstað, dómara, starfsmenn, hráefni og sjá til þess að viðburðurinn sé stéttinni til framdráttar.
Þetta var fyrsta keppnin sem haldin er að hausti til hér sunnan megin og var meginástæða við flutning á keppninni sá, að á haustin er uppskera sumarsins að koma í hús og möguleiki á ferskri íslenskri vöru miklu meiri heldur um miðjan vetur.
Það gekk vel að fá aðila til að styrkja keppnina á einn eða annan hátt, eins og sést á listanum hér að neðan.
Viljum við í nefndinni um matreiðslumann ársins þakka þeim aðilum sem á listanum eru fyrir þeirra framlag og vonandi eigum við gott samstarf í framtíðinni, einnig óskum við þess að félagar okkar reyni að beina viðskiptum sínum til þessara aðila þar sem hægt er að koma því við.
Einnig viljum við þakka dómurum fyrir óeigingjarnt starf sem og þeim sem störfuðu við keppnina.
Skal bent á það að karfan er komin á netið (Pdf-skjal)
Nefndin um matreiðslumann ársins 2008.
Þeir sem styrktu keppnina um Matreiðslumann ársins 2008:
Ytri Fagridalur , Skarðsveit , Halla Steinólfsdóttir, Hvannalamb
Vallarnes , Fljótsdalshérað , Eymundur Magnússom, Grænmeti
Þorvaldseyri , Eyjafjöllum Ólafur Eggertsson, Heilhveiti
Klausturbleikja, Kirkjubæjarklaustur Birgir Þórirson, Bleikja
Hótel Geysir Haukadal ,Bjarki Hilmarsson, Hverabrauð
Eyrarfiskur Stokkseyri, Jón Haraldsson, Harðfiskur
Skógrækt ríkisins Haukadal,Einar Óskarsson Birkisíróp
Engi Bláskógabyggð, Ingólfur Guðnason Kryddjurtir
Langamýri Skeiðum, Kjartan Ágústsson Rabbabari
K & G , Sandgerði,Kjartan Páll Guðmundsson ,Rauðspretta
Garri Reykjavík Magnús Magnússon Þurrvörur
MS Reykjavík , Aðalsteinn H Magnússon, Mjólkurvörur
Kjötvinnslan Esja Reykjavík ,Karl Ómar Jónsson, Hrefna
Bananar Reykjavík, Bárður Níelsson,Grænmeti
Sælkeradreifing Reykjavík, Gullaugur Örn Valsson Súkkulaði
Hótel og Matvælaskólinn Kópavogi, Margrét Friðriksdóttir aðstaða
Bako Ísberg Magnús Héðinsson áhöld
Freisting.is Smári Sæbjörnsson fréttamiðlun
Þeir sem gáfu vinninga:
Gestgjafinn Reykjavík Sólveig Baldursdóttir áskrift
Við Pollinn Ísafirði , Halldór Karl Valsson veitingar
Fisherman Suðureyri, Elías Guðmundsson Gisting sjóstöng
Le Manor aux quait Sasons Oxford Reymond Blanc námskeið
Texture London Agnar Sverrisson námskeið,
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt6 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt5 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn2 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Food & fun1 dagur síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn




