Uncategorized
Windham Estate og Jacob´s Creek dagar í Fríhöfninni Leifsstöð
Í júlí mánuði verða vín frá hinum virtu vínhúsum Jacob´s Creek og Orlando Wines á sérstöku kynningarverði í Fríhöfn Leifs Eiríksonar. Þessi vínhús koma frá Suður – Ástralíu og hafa getið sér gott orð á íslaenskum markaði undanfarin ár.
Vínin frá Jacob´s Creek einkennast af ferskleika, þægilegheitum og frábærum gæðum. Þau hafa verið feykivinsæl bæði í Ástralíu og í raun um allan heim. Jacob´s Creek hefur verið þekktasta merkið frá Ástralíu og verið leiðandi þar í yfir eina öld og er oftar en ekki þakkað magnaður árangur í vínútflutningi frá Ástralíu.
Meira en 80% af vínum frá Jacob´s Creek er hægt að finna í meira en 60 löndum víðs vegar um heiminn enda án efa eitt allra vinsælasta vínið frá Ástralíu.
Windham Estate hefur verið nokkuð áberandi hér á landi og hefur Bin 555 Shiraz slegið í gegn í verslunum ÁTVR á undanförnum mánuðum.
Mikið er lagt upp úr kynningu á vínunum og gefst gestum Fríhafnarinnar kostur á að smakka þessi vín við komu, helstu álagsdaga í viku hverri. Mikil verðlækkun er á áðurtöldum vínum og geta menn sparað sér nokkur hundruð kronur á hverri flösku.
Hægt er að skoða plakatið af Áströlsku dögunum hér (Pdf)

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt vörumeri hjá Nathan: Musgraves Excellence
-
Markaðurinn6 dagar síðanDineout kynnir nýja klippikortalausn fyrir veitingastaði
-
Markaðurinn5 dagar síðanDanól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMichelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga
-
Frétt6 dagar síðanMatvælastofnun varar við Malwa tei vegna aðskotaefnis
-
Markaðurinn2 dagar síðanSparaðu með júlítilboðum Nathan


