Vertu memm

Uncategorized @is

Áhugamenn sjá ekki nýtinguna í eldhúsi OR – Vídeó

Birting:

þann

Á vef dv.is má sjá frétt með fyrirsögninni: “Innsýn í bruðlið í Orkuveitunni: Engu til sparað við eldhúsið.” Með fréttinni fylgir svo myndband með skýringunni “Myndbandið veitir innsýn í lúxusinn í eldhúsinu, allar græjur og tækni eins og hún gerist best”.

Þetta myndband hefur farið eins og eldur um sinu í netheimum síðustu daga.

Ef horft er á myndbandið frá faglegu sjónarhorni má glöggt sjá að tæki og annar búnaður í eldhúsinu sé búinn að margborga sig því það er margsannað að þau eldhús sem eru vel búin tæki og tólum spara mannskap og nýtingu á hráefni svo eitthvað sé nefnt.

Eins og sjá má sjá í myndbandinu virðist mikið hráefni unnið á staðnum sem sparar mikinn kostnað og greinilega er unnið eftir hinu frábæra HACCP kerfi sem tryggir gott hráefni. Það er ekkert grín ef upp kemur matareitrun í fjölmennum starfsmannahópi eins og hjá OR og slíkt myndi svo sannarlega kosta skildinginn.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið