Vertu memm

Keppni

Skráning í Bakara ársins 2013 í fullum gangi | Þemað er Haust

Birting:

þann

Hótel og matvælaskólinn

Keppnin Bakari ársins 2013 verður dagana 27. – 28. september næstkomandi í húsnæði Hótel- og matvælaskólans í Kópavogi (V37).  Rétt til þáttöku hafa þeir, sem hafa lokið  sveinsprófi í bakaraiðn, skráður í keppni fyrir 18. september 2013.

Undirbúningsnefndin er að taka á móti skráningum á netfangið [email protected]  Skráningargjaldið er 5.000 krónur og lýkur skráningu 18. september.

Við skráningu þarf að koma fram:

– Fullt nafn keppanda
– Vinnustaður
– Netfang
– Nafn greiðanda

Skráningargjaldið þarf að hafa borist áður en skráningu lýkur og leggist inn á reikning 0334 03 401196, kt. 110662-5569.

Þemað er Haust

Keppnisfyrirkomulag:

Föstudagur 27. september
kl 11:30 Mæting Björnsstofu 3. hæð í MK, keppendur fá úthlutaða vinnustöð.
kl 12:00 keppni hefst
kl.17:00 keppni lýkur fyrri daginn.

Laugardagur 28. september
kl.09:00 keppni hefst seinni dag
kl.15:00 keppni líkur seinni dag
Myndataka.

Sýning
Gestum boðið að smakka afurðir og þiggja viðeigandi drykki með.

Sunnudagur 29. september
Úrslit kynnt

Allt hráefni er á staðnum.

Útgefin verður hráefnislisti 18. september á vefslóðinni www.faggreinar.is
Keppendur mega koma með eigið krydd, bragðefni, súrdeig og heilkorn, engar blöndur eða hjálparefni.

Uppstilling:
borð 140 x 130 cm með hvítum dúk, má koma með eigin.

Uppskriftum skal skila í einföldu word skjali merkt keppanda.  (Dæmi: Ásgeir Þór Tómasson = BA13_AÞT)

Það sem keppandi þarf að koma með er:

Auglýsingapláss

– Bros á vör
– Handverkfæri, það eru skóla áhöld á staðnum.
– Hreinan vinnufatnað. (skór , buxur, jakki, svunta og höfuðfat)
– Uppskriftir
– Og slatta af húmor

Tæki sem eru á staðnum:
Hrærivél, stikkofn, steinofn, plötur, gashellur, brekkvél, ofn, kæli- og frystiskápur, rúlluvél, örbylgjuofn, tilheyrandi hreingerningavörur og tuskur.

Ef keppendur verða margir gæti tímasetning breyst.

Mynd: úr safni

/Smári

Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið