Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður opnar í miðbæ Reykjavíkur í september

Burro og Pablo Discobar verða staðsettir við Ingólfstorg í Veltusundi 1 þar sem Einar Ben var áður til húsa
Það má reikna með því að Burro og Pablo Discobar verða saman einn vinsælasti áfangastaður Reykjavíkur og lífssprauta í veitingaflóru bæjarins með framandi réttum og einstöku kokteilframboði.
Eigendur eru vel þekktir í veitingabransanum en þeir eru Gunnsteinn Helgi Maríusson, Samúel Þór Hermannsson, Eyþór Mar Halldórsson og Róbert Óskar Sigurvaldason.
„Byggt á grunni vinalega andrúmsloftsins viljum við að upplifunin sé skemmtileg og staðurinn uppliftist sem einhverskonar skrítið, fágað partý. Staðurinn er hannaður í útliti sem vitnar í suðræn áhrif, en með nútímanlegu partýívafi. Þessi samblanda þekktrar suðrænnar stemningar og hátíðarskap ætti að einkenna flesta fleti starfseminar.
Starfsfólk staðarins er vel falið fagfólk, eigendur og rekstraraðilar sömuleiðis sjóað í þessum bransa og veit hvað gengur. Hönnun og ásýnd staðarins er framkvæmd af fólki með góða reynslu og orðstír.“
segja eigendur um Burro og Pablo Discobar sem staðsettir verða við Ingólfstorg í Veltusundi 1 þar sem Einar Ben var áður til húsa. Veitingastaðurinn heitir Burro og er á annarri hæðinni og á efstu hæðinni verður kokteilbarinn Pablo Discobar.
Staðirnir opna í september næstkomandi og Burro tekur 100 manns í sæti og Pablo Discobar tekur 50 manns í sæti.
Yfirkokkur er harðjaxl, hokinn af reynslu úr bransanum, sjálfur Eyþór Mar Halldórsson matreiðslumeistari og með honum til halds og traust eru vaktstjórarnir Daníel Jóhannsson og Sigurður Gunnlaugsson.
Yfirþjónar verða Samúel Þór Hermannsson og Gunnsteinn Helgi Maríusson. Oddur Goði og Davíð Daníels verða vaktstjórar.
Yfirbarþjónn er einn af frumkvöðlum kokteilmenningar á Íslandi Ásgeir Már Björnsson.
Burro verður modern latin smárréttastaður, með gott úrval af smáréttum frá allri suður og mið Ameríku ásamt safaríkum suðuramerískum steikum. Eldhúsið verður opið fram eftir, hress og skemmtileg latino tónlist og boðið verður upp á gott úrval af kokteilum.
Á Pablo Discobar verður rjóminn af bestu barþjónum Íslands undir stjórn Ásgeirs Márs og verður opið fram eftir nóttu.
Hönnuður staðarins er Hálfdán Pedersen og Þórður Orri er ljósahönnuður staðarins.
Fyrir áhugasama þá er Burro og Pablo að auglýsa eftir matreiðslumönnum og þjónum. Hægt er að sækja um á Burro á netfangið [email protected] og þeir sem hafa áhuga að sækja um á barnum geta sent umsókn á [email protected]
Mynd: Smári / veitingageirinn.is
-
Keppni6 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Markaðurinn5 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Starfsmannavelta2 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Keppni2 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt hjá Garra: Mabrúka, handgerð krydd frá Túnis
-
Markaðurinn3 dagar síðanÞarf alltaf að kaupa nýtt?




