Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Reynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
Resident Room, nýr og fágaður kokteilbar, opnar dyr sínar að Hverfisgötu 26, þar sem Mat bar var áður til húsa, næstkomandi miðvikudag.
Að staðnum stendur hópur reynslubolta úr veitinga- og skemmtanageiranum sem ætlar sér að hrista rækilega upp í íslensku kokteilsenunni.
Resident Room er sérstaklega hannaður með markhópinn 30 ára og eldri í huga. Megináhersla staðarins er lögð á framúrskarandi kokteila, vandlega valið vínúrval og glæsilegan „happy hour“. Einnig verður boðið upp á létta rétti eða ,,aperitivo” sem tónar fullkomlega við drykkjaseðilinn.
Opnunartími verður frá klukkan 16:00 til 01:00, sem gerir staðinn tilvalinn jafnt fyrir eftirvinnudrykkinn sem og notalegt kvöld í góðra vina hópi.
Slippbarsteymið mætt aftur til leiks
Það sem mun án efa vekja mikla athygli er teymið sem stýrir barnum. Þar fara fremstir í flokki þeir Ásgeir Már Björnsson, betur þekktur sem Ási, og Rás 2 útvarpsmaðurinn Danni Baróns. Ási er af mörgum talinn einn helsti brautryðjandi kokteilmenningarinnar eins og við þekkjum hana á Íslandi í dag.
Eftir að hafa verið búsettur erlendis undanfarin misseri er hann nú snúinn aftur heim og hefur tekið höndum saman við Danna, en þeir félagar störfuðu einmitt lengi saman á Slippbarnum þar sem íslenska kokteilbyltingin hófst fyrir alvöru. Markmið þeirra á Resident Room er skýrt: Að halda áfram að ýta mörkum kokteilsenunnar enn lengra.
Auk þeirra Danna og Ása kemur að staðnum fólk með áratugareynslu úr íslenska skemmtanalífinu, meðal annars frá goðsagnakenndum stöðum á borð við Rex og Loftið. Sú reynsla mun skila sér í framúrskarandi þjónustu og andrúmslofti þar sem fagmennskan er í fyrirrúmi.
Myndir: aðsendar
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu









