Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Agnar og Xavier opna þriðja 28-50 veitingastaðinn – Myndir frá undirbúningi
Þeir félagar Agnar Sverrisson matreiðslumaður og Xavier Rousset vínþjónn vinna nú að því að opna þriðja 28°-50° veitingastaðinn í London. 28°-50° veitingastaðirnir eru staðsettir Marylebone, Fetter Lane og sá þriðji á Maddox Street í London. Agnar og Xavier eru einnig eigendur af veitingastaðnum Texture í London sem skartar 1 michelin stjörnu.
Nýi 28°-50° veitingastaðurinn er með sæti fyrir 90 manns, á tveimur hæðum og á efri hæðinni verður sjávarréttarbar fylltur upp með klaka, þar sem fjölmargir fiskréttir verða í boði. Líkt og á hinum 28°-50° veitingastöðunum er lögð áhersla á rólegt umhverfi með vín á boðstólnum milli þeirra breiddagráða sem mynda nafn staðarins og matseðillinn verður afgreiddur allan daginn.
Í dag og næstu 7 daga verður svokölluð „pre-open“ á nýja 28°-50° staðnum, opnunarpartý verður síðan föstu-, og laugardaginn 6. og 7. september og formleg opnun 9. september næstkomandi.
Ég verð mikið á gólfinu fyrstu vikuna í hádeginu, en það er ekki nema fimm mínútna labb á milli Texture og nýja staðsins.
…sagði Agnar Sverrisson í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um hvort hann kæmi til með að standa vaktina.
Ég er eingöngu á Texture, en það eru góðir strákar sem sjá um nýja 28°-50°, þeir Justin kokkur sem er búinn að vera tvö ár á Texture hjá mér og svo Ed Newman þjónn sem er búinn að starfa hjá okkur í fjögur ár.
Hægt verður að fylgjast vel með þeim félögum í tíst glugganum hér til hægri á forsíðunni (þar sem örvarnar sýna), þar sem fjölmargar myndir ofl. birtist á hverjum degi.
Við hjá veitingageirinn.is óskum Agnari og Xavier til hamingju með nýja veitingastaðinn og óskum þeim alls farnaðar í rekstri þess.
Myndir og myndatexti af twitter síðu 2850Restaurant
Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Iðunn Mathöll á Akureyri opnar í dag
-
Frétt4 dagar síðan
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
-
Frétt21 klukkustund síðan
Atvinnurekanda skylt að greiða matreiðslumanni 1,4 milljónir króna vegna vangreiddra launa
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Wolt “wrapped” samantektin – Það sem Íslendingar pöntuðu á árinu 2024
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Kalkúnaveisla með öllu tilheyrandi
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa
-
Frétt3 dagar síðan
Innköllun á sviðasultu frá Kjarnafæði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel17 klukkustundir síðan
Veitingastaðurinn MAR opnar á Frakkastíg