Smári Valtýr Sæbjörnsson
Yfir 100 Pítsusendlar og -pizzugerðarmenn hlupu 10 km

Hér má sjá starfmenn Domino‘s við rásmarkið með framkvæmdastjórann Birgi Örn Birgisson fremstan í flokki
Ríflega 100 starfsmenn Domino‘s á Íslandi, eða um fjórðungur starfsfólks fyrirtækisins, tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu nú um helgina og hlupu 10 kílómetra og lögðu þannig Regnbogabörnum lið en samtökin eru baráttusamtök gegn einelti.
Í síðustu viku seldi fyrirtækið sérstakar góðgerðarpizzur eftir uppskrift frá sælkerakokknum Hrefnu Sætran. Söluandvirðið rann óskipt til starfs Regnbogabarna.
Domino´s fagnar 20 ára afmæli sínu um þessar mundir og fagnar því meðal annars með ýmis konar góðgerðarstarfi.
Regnbogabörn vinna nú að því að koma í loftið forvarna- og fræðsluvef sem mun líta dagsins ljós innan tíðar.
Myndir: aðsendar
/Smári
Taggaðu okkur á Twitter og Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.
-
Markaðurinn4 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun13 klukkustundir síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Markaðurinn2 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima


