Freisting
Bæjarins bestu eru heimsins bestu!
„Vá, þú ert að segja mér fréttir. Ég er orðlaus,“ segir Guðrún Kristmundsdóttir þegar Fréttablaðið tilkynnti henni að pylsubarinn hennar Bæjarins bestu hefði verið valinn einn af fimm bestu matsöluturnum í Evrópu af breska dagblaðinu The Guardian. Í fyrsta sæti var skoskur hafragrautastandur sem ferðast um markaði og útihátíðir í Skotlandi og selur hafragraut með allskyns meðlæti.
„Mér finnst mjög fyndið að hafragrautur skuli vera fyrir ofan okkur,“ segir Guðrún hlæjandi en íslensku pylsurnar hennar hafa verið mjög vinsælar meðal ferðamanna og landsmanna svo lengi sem elstu menn muna. The Guardian segir að flestallir Íslendingar hafi smakkað pylsurnar og telur blaðið að leyndardómurinn á bak við pylsurnar sé remúlaðið ofan á, en því er lýst í blaðinu sem leyndardómsfullri og bragðgóðri sósu.
Pylsubarinn á Tryggvagötu er sá vinsælasti enda er opið lengi eða til sex á morgnana um helgar. Síðan eru starfræktir tveir pylsubarir til viðbótar í Skeifunni og í Smáralind.
Guðrún segir að koma Bills Clinton á Bæjarins bestu fyrir tveimur árum hafi aukið hróður pylsubarsins á heimsvísu. „Það eru margir frægir sem koma á pylsubarinn við Tryggvagötu. Hljómsveitin Metallica kom til okkar og fékk sér pylsu og hafði orð á því hversu gott það væri að fá að vera í friði að borða en greyið Bill fékk ekki að vera í friði fyrir æstum blaðamönnum og fylgdarliði,“ segir Guðrún og bætir því við að hún haldi að flestallir útlendingar sem komi til landsins fari og fái sér pulsu hjá sér.
Þeir spyrja mikið um pylsurnar enda óvanir því að pylsur séu gerðar úr jafn miklu gæðahráefni og á Bæjarins bestu en þar er notað íslenskt lambakjöt í staðinn fyrir svínakjöt eins og gert er í útlöndum.
Guðrún segist ekki fá neinar kvartanir frá fólki nema frá Dönum sem eru óánægðir með það að geta ekki keypt sér með bjór með pulsunni. „Það er eina kvörtunin sem ég hef fengið en ég ætla þó ekki að fá mér vínveitingaleyfi. Það er nóg af stöðum í kring sem selja áfengi,“ segir stoltur eigandi Bæjarins bestu.
Greint frá á Mbl.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Veitingastaðurinn Parma flytur – Leó Máni: Við höfum fengið mjög góðar móttökur….
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Matarupplifun í jólapakkann – Dineout gjafabréf gildir á yfir 300 veitingastaði
-
Uppskriftir5 dagar síðan
Ris a la mande ostakaka í glösum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr ítalskur veitingastaður opnar á Laugaveginum
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Ferskur kavíar er kominn í hús
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Ljúffengir léttkryddaðir andarleggir – fullkomin villibráð
-
Frétt3 dagar síðan
Afhendingartími eggja lengdur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel15 klukkustundir síðan
Wok to Walk opnar á Íslandi – Einar Örn: það er mjög spennandi að taka þátt í opnuninni hér heima ….