Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Coca-Cola breytir um vörumerkjastefnu – Allir drykkirnir heita Coca-Cola en verða í mismunandi lituðum umbúðum

Birting:

þann

Carlos Cruz - Coca-Cola

„Engin breyting á bragðinu“ að sögn Carlosar Cruz sem nýverið tók við sem forstjóri Vífilfells

Vífilfell kynnti á Hilton Reykjavík hótelinu nú á dögunum breytingar á drykkjum Coca-Cola þar sem öll vörulína Coke hefur verið sameinuð undir einum hatti – þar á meðal eru Coca-Cola, Coke light og Coke Zero. Þannig vill fyrirtækið nýta styrk Coca-Cola vörumerkisins betur og um leið undirstrika þá fjölbreyttu valmöguleika sem standa neytendum til boða undir þessu heimsþekkta vörumerki, segir í fréttatilkynningu frá Coca-Cola fyrirtækinu.

  • Tímamóta ákvörðun eins stærsta auglýsanda heims. Telja eitt „yfirvörumerki“ vera betri leið til að ná til neytenda.
  • Drykkir eins og Coke Light og Coke Zero verða allir Coca-Cola en í mismunandi lituðum umbúðum og með ólíkri innihaldslýsingu.

Allir drykkirnir munu í framtíðinni heita Coca-Cola en verða í mismunandi lituðum umbúðum og með ólíkri innihaldslýsingu. Ákvörðunin var kynnt samtímis um alla Evrópu en neytendur á Íslandi þurfa að bíða fram í maí til að sjá merki um hana í hillum verslana.

Lítil kók í gleri 100 ára í ár
Coca-Cola hefur verið á borðum Íslendinga í yfir 70 ár en þess er nú jafnframt minnst að 100 ár eru liðin frá því að hin þekkta Coca-Cola flaska var fyrst sett á markað, en hér á landi er hún best þekkt sem „lítil Coke í gleri“.

Coca-Cola fyrirtækið hefur reglulega þurft að mæta þörfum breyttum þörfum neytenda útfrá bragðskyni, breyttu neyslumynstri og lífstíl. Það hefur fyrirtækið gert með því að bjóða upp á ný vörumerki með mismunandi ásýnd og boðið fólki upp á mismunandi valmöguleika í bragði, kaloríufjölda og koffeinmagni. Í fortíðinni hafa þessir nýju drykkir staðið sér en nú munu þeir allir flokkast sem Coke og áherslan í markaðssetningu og auglýsingum verður á eitt vörumerki.

Bragðið breytist ekki
Eftir breytinguna munu þessi mismunandi vörumerki, auk nýrra sem kunna að koma á markað, sem áður segir sameinast undir hatti Coca-Cola vörumerkisins. Ekki verður þó hvikað frá bragðinu sem neytendur þekkja. Þessi nýja nálgun er talin breikka hið heimsþekkta vörumerki þvert yfir vöruframboð fyrirtækisins. Á sama tíma munu umbúðir og auglýsingar undirstrika mismunandi eiginleika hverrar vöru, sem auðveldar neytendum val á vöru við sitt hæfi.

Stefnumörkun Coca-Cola undir hatti vörumerkisins:

  • Allar Coca-Cola auglýsingar, varningur og styrktarsamningar á Íslandi munu nú vera undir hinu þekkta Coca-Cola vörumerki.
  • Allar Coke umbúðir, bæði með sykri og sætuefnum, munu nú vera í samræmdu útliti
  • Á hverri vöru verður innihald undirstrikað á skýran hátt með notkun lita til aðgreiningar ásamt öðrum viðeigandi upplýsingum.

Þetta er gríðarleg framþróun fyrir þetta sterkasta vörumerki okkar og setur val neytenda sem hjartað í stefnumörkun okkar hjá Vífilfelli, líkt og hefur verið gert annars staðar í Evrópu. Hvort sem neytendur velja hið klassíska rauða Coke eða aðra valmöguleika án sykurs, ertu alltaf að drekka Coke, bara það sem hentar þínum þörfum.

Með nýju stefnumörkun fyrirtækisins munum við setja innihaldslýsingu og upplýsingar um Coke drykki okkar á meira áberandi stað á vörunni sem mun aðstoða fólk að velja vöru eftir eigin smekk. Við teljum þetta vera spennandi þróun bæði fyrir okkur og fyrir viðskiptavini okkar. Rétt er að taka fram að engin breyting verður á bragðinu. Annað væri náttúrulega óskynsamlegt.

, segir Carlos Cruz forstjóri Vífilfells sem kynnti ákvörðun Coca-Cola á Hilton Reykjavík hótelinu fyrr í mánuðinum.

 

Mynd: aðsend

/Smári

 

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið