Vertu memm

Freisting

Ný norræn matargerð, tæki til nýsköpunar

Birting:

þann

Með verkefninu “ný norræn matargerð” vilja norrænu ríkisstjórnirnar varðveita norræn gildi og nýta fleiri sóknarfæri. Í stuttu máli þá verður norræn matarmenning nýtt sem tæki til nýsköpunar og til að auka samkeppnishæfni.

Ætlunin að gera samkeppnishæfni Norðurlanda meira sýnilega með því að tengja matargerðarlist og matarmenningu, ferðaþjónustu og svæðisbundin gildi, heilbrigði, velferð og þróun atvinnulífsins, hreint hráefni og verðmætasköpun. Þetta á einnig að stuðla að því að Norðurlöndin viðhaldi stöðu sinni sem alþjóðlegt sigursvæði.

Það var Per Unckel framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar sem kynnti áætlunina um nýsköpun, verðmætasköpun og samkeppnishæfni og tengingu þess við norræna matarmenningu fyrir norrænu landbúnaðarráðherrunum í Svolvær(Pdf) á þriðjudagsmorguninn.

Á fundinum bauð framkvæmdastjórinn ráðherrum landbúnaðar og matvæla frá öllum Norðurlöndunum upp á nýjan matseðil. Ráðherrarnir ætla ásamt ráðherrum sjávarútvegs og skógræktar að ræða mikilvæg mál sem tengjast matvælum, heilbrigði og hreyfingu, velferð dýra og ólöglegar veiðar.

Ennfremur verða rædd mikilvæg málefni eins og norrænt samstarf um erfðaauðlindir, framkvæmdaáætlun um matvæli, hreyfingu og heilbrigði.

Fjallað var um þema ráðherrafundarins á stórri ráðstefnu sem haldin var í Bodø fyrir fundinn. Þar var verið að fjalla um þróun strandsvæða, land- og skógarsvæða. Ráðherrarnir munu samþykkja yfirlýsingu á fundi sínum um þróun strand-, land- og skógarsvæða.

Heimild:
Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin

Mynd: bagatelle.no

[email protected]

 

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið