Smári Valtýr Sæbjörnsson
Stórsýningin Matur og drykkur 2014 í Laugardalshöll um helgina
Það verður eitthvað við allra hæfi á hinni stórglæsilegu matar- og drykkjarsýningu Matur og drykkur 2014 sem haldin verður um helgina næstkomandi 8. og 9. nóvember í Laugardalshöllinni.
Sýningin verður óvenju fjölbreytt og girnileg. Bæði mikið úrval af alls kyns áhugaverðum mat og drykkir við allra hæfi. Einnig verða mjög áhugaverð tilboð fyrir jólin bæði á matvöru, drykkjarvöru og eldhúsáhöldum svo eitthvað sé nefnt.
Frítt verður fyrir yngri en 12. ára í fylgd með fullorðnum annars bara 1.000 kr. og miði gildir alla helgina. 16. ára í fylgd með fullorðnum.
Matur hægra megin
Í hægra anddyri hallarinnar verður boðið uppá mjög fjölbreyttar kynningar á alls kyns girnilegum mat. Má nefna alla vega kjúklingarétti og aðra kjötrétti, spennandi fiskirétti frá sprotafyrirtækjum, nýjungar á sviði brauðgerðar svo sem súkkulaðihúðaðar kleinur og svo verða þrjú mjólkurfyrirtæki með spennandi ostarétti og fleira. Þá verða tilboð á girnilegri matvöru fyrir jólin og einnig ýmsu fyrir matseldina svo sem eldhússáhöldum og fleiru sem nýtist vel í eldhúsinu.
Drykkir vinstra megin
Ekki þurfa gestir að fara þyrstir né svangir af vettvangi því í nýja anddyri Laugardalshallarinnar verður boðið upp á ótrúlega fjöllbreytta drykki. Þar verða nýir íslenskir heilsudrykkir, nýtt íslenskt whyskí frá sprotafyrirtæki, spennandi nýjar bjórtegundir, eðalrauðvín frá Spáni svo fátt eitt sé nefnt. Einnig geta gestir keypt flott glös fyrir jólin og fengið notalegt fótanudd um leið og þeir dreypa á girnilegum drykkjum. Starfsmenn sýningarinnar og básanna framfylgja lögum og reglum um að yngri en 20 ára fá ekki að smakka hina áfengu drykki en að sjálf sögðu verður nóg um óáfenga heilsudrykki.
Facebook síða sýningarinnar Matur og drykkur 2014
-
Markaðurinn4 dagar síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina
-
Keppni5 dagar síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni6 dagar síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni4 dagar síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanPizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
-
Markaðurinn4 dagar síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi





