Vertu memm

Eldlinan

Nýr formaður Freistingar

Birting:

þann

Smári V. SæbjörnssonSmári V. Sæbjörnsson hefur sagt upp störfum eftir 11 ára starf sem formaður Freistingar. Hallgrímur Sigurðarson Hallgrímur Sigurðarsonmatreiðslumaður, hefur tekið við formennsku Freistingar.

Fjölmennur fundur var haldinn í gærkvöld á Vín og Skel og voru mörg mál rædd.

Eftir að hafa rætt formannsskiptin, þá var veitingabransinn meðal annars tekinn undir smásjá og spjallað um hverjir eru að byrja á hvaða veitingastað osfr. Það sem vakti athygli manna, var hve margir matreiðslumenn eru að skipta um vinnu og færa sig um set. Nefndir voru að minnsta kosti 6 veitingastaðir og samanlagt um 15 matreiðslumenn sem eru að skipta um starf og þá allt upp í 4 matreiðslumenn á einum stað sem hætta starfi og fara á aðra staði. Hvað veldur er ekki vitað, en sagan segir að mönnum sé boðið gull og grænir skógar, enda finnast matreiðslumenn ekki á hverju strái og erfitt er að fá þá til starfa, nema þá með gylliboðum.

Eftir þessar líflegu umræður var maturinn borinn fram og þvílík og önnur eins veisla. Þema kvöldsins var sjávarréttir og meira að segja var kafari fenginn sérstaklega til þess að kafa eftir ýmsum sjávarföngum snemma um morguninn fyrir matseðlilinn, en þess ber að geta að allir réttir innihéldu íslenskt hráefni. Matseðillinn var á þessa leið:

Matseðill

Reykt kúfskel frá Þórshöfn á Langanesi með eyfirskum harðfiski og djúpsteiktum íslenskum krabba

~ 0 ~

Öðuskel frá Hrísey með soðhlaupi á hvítlauksflani, dilli og alfaspírum

~ 0 ~

Ígulker „Hrísey“ og froða, marineruð í lime með sabyone

~ 0 ~

Pönnusteiktur skötuselur í boði Marlands með lauksultu, humarsouffle, escabeché grænmeti og kartöflumús

~ 0 ~

Engifer Brulée

Kveðja
Stjórnin

Myndir frá Freistingafundinum sem haldinn var í gærkveldi á veitingastaðnum Vín og skel

 Pönnusteiktur skötuselur í boði Marlands með lauksultu, humarsouffle, escabeché grænmeti og kartöflumús

 Öðuskel frá Hrísey með soðhlaupi á hvítlauksflani, dilli og alfaspírum

 Reykt kúfskel frá Þórshöfn á Langanesi með eyfirskum harðfiski og djúpsteiktum íslenskum krabba

 Ígulker "Hrísey" og froða, marineruð í lime með sabyone

 Mini magg, Maggi, Kjartan og Róbert

 Hinni og Ottó

 Róbert og Matthías

 Ottó og Hallgrímur

 Hinrik Carl, Stefán Cosser og rétt sést í Arnþór :)

 Létt spjall

 Jónas, Mini Magg og Magnús  Sveinbjörn og Kjartan

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið