Frétt
Arna innkallar 200 gramma jógúrtdósir vegna plastbita
Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Örnu jógúrt með jarðarberjum og AB-gerlum frá Örnu ehf. vegna aðskotahlutar (plastbiti) sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu;
- Vörumerki: Arna
- Framleiðandi: Arna ehf, Hafnargata 80, 415 Bolungarvík
- Vara: Örnujógúrt með jarðarberjum og AB-gerlum
- Þyngd: 200g dós
- Best fyrir: 13.11.26
- Strikanúmer: 5694230157044
- Geymsluskilyrði: Kælivara 0-4°C
- Dreifing: Krónan, Bónus, Hagkaup, Prís, Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Fjarðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin.
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni í verslun gegn nýrri vöru eða fullri endurgreiðslu.
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




